Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2026 06:30 Cristiano Ronaldo er kokhraustur þrátt fyrir slaka frammistöðu hans í óvæntu jafntefli á móti Kongó. Getty/Elizabeth Kreutz Cristiano Ronaldo varði frammistöðu Portúgals gegn Austur-Kongó í opnunarleik þeirra á heimsmeistaramótinu en sagðist þegar vera farinn að horfa til næsta leiks.
Portúgal var mun meira með boltann en átti aðeins eitt skot á mark í 1-1 jafntefli á miðvikudaginn í Houston. „Það vantaði ekkert upp á,“ sagði hinn 41 árs gamli Ronaldo við fréttamenn eftir leikinn. „Svona er fótboltinn. Portúgal hefði getað unnið en þeir hefðu líka getað tapað,“ sagði Ronaldo. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína þar á meðal af frönsku goðsögninni Thierry Henry. Ronaldo, sem ásamt Lionel Messi, fyrirliða Argentínu, er eini leikmaðurinn til að spila á sex heimsmeistaramótum, spilaði allar 90 mínúturnar á miðvikudaginn. Ólíkt Messi, sem byrjaði heimsmeistaramótið á þrennu í 3-0 sigri Argentínu gegn Alsír, átti Ronaldo slakan dag og öll þrjú skot hans fóru fram hjá markinu. „Þetta var ekki byrjunin sem við vildum en þetta er alls ekki búið,“ skrifaði Ronaldo á Instagram, en hann hefur ekki skorað mark úr opnum leik á stórmóti síðan 19. júní 2021. „Höfuðið hátt og einbeiting á næsta leik.“ Liðsfélagi Ronaldo hjá Al Nassr, João Félix, var ekki hissa á sterkri frammistöðu Austur-Kongó en afríska landið tryggði sér sitt fyrsta stig á heimsmeistaramóti frá upphafi. „Fyrsti leikurinn er alltaf fyrsti leikurinn,“ sagði João Félix. „Jafnvel þótt það sé á móti veikara liði, þá eru þeir að spila fyrir landið sitt. Ef þetta er draumur fyrir okkur, þá er þetta líka draumur fyrir þá. Þeir gefa alltaf aðeins meira í þetta.“ João Félix, sem hafði betur gegn Ronaldo í kjörinu á leikmanni tímabilsins í sádísku úrvalsdeildinni, er fullviss um að Portúgal muni gera betur eftir því sem líður á mótið. Portúgal spilar næst við Úsbekistan á þriðjudaginn í Houston áður en liðið mætir Kólumbíu í lokaleik sínum í K-riðli þann 27. júní. „Við munum klárlega bæta okkur,“ sagði João Félix. „Þetta snýst um að sjá hvað við gerðum ekki vel og laga það í næsta leik, svo við getum unnið.“
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira