Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Aron Guðmundsson skrifar 17. júní 2026 07:22 Messi fagnar marki í nótt Vísir/Getty Hinn 38 ára gamli Lionel Messi sýndi það og sannaði í nótt af hverju hann er talinn vera besti knattspyrnumaður sögunnar. Messi skoraði þrennu í 3-0 sigri Argentínu gegn Alsír og jafnaði um leið markamet á HM.
Fyrr um kvöldið höfðu stórstjörnur á borð við Kylian Mbappé hjá Frakklandi og Erling Haaland hjá Noregi skinið með sínum landsliðum á HM en frammistaða þeirra fellur í skuggann á frammistöðu Messi. Eftir að hafa skorað fyrsta mark sitt í leiknum mátti sjá að Messi átti erfitt með að halda aftur af tárunum. Að flestra mati er um hans síðasta heimsmeistaramót að ræða, Messi virðist meðvitaður um það. Hann bætti við tveimur mörkum til viðbótar, fullkomnaði sína fyrstu þrennu á HM frá upphafi og jafnaði um leið markamet Þjóðverjans Miroslav Klose sem hafði skorað flest mörk á heimsmeistaramótum á ferlinum, sextán talsins. Messi er fyrsti leikmaðurinn til þess að taka þátt á sex heimsmeistaramótum, Cristiano Ronaldo og Guilermo Ochoa munu feta í hans fótspor komi þeir við sögu í leikjum sinna liða á yfirstandandi móti. Það er öruggt í tilfelli Ronaldo en ekki Ochoa sem er sem stendur varamarkvörður Mexíkó. 200 - In what is his 200th senior appearance for Argentina, Lionel Messi becomes the first ever man to play in six different editions of the FIFA World Cup.Icon. pic.twitter.com/L2KamlBZYA— OptaJoe (@OptaJoe) June 16, 2026 Tuttugu ár hafa liðið síðan að Messi spilaði sinn fyrsta leik fyrir Argentínu á HM í Þýskalandi árið 2006. Messi er að njóta þess að spila á þessu heimsmeistaramóti með fjölskyldu sinni, vinum og liðsfélögum en Argentína á titil að verja á mótinu. „Allt sem ég upplifi núna er bónus. Ég hef verið svo lánsamur að upplifa alla mína drauma rætast, jafnvel meira en það,“ sagði Messi í viðtali eftir leik. Frábær byrjun á titilvörn Argentínu og Messi. Þykir næsta víst að hann muni slá markamet Klose á mótinu og rita nafn sitt enn og aftur í sögubækurnar.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira