Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Sindri Sverrisson skrifar 16. júní 2026 11:02 Shaun Evans segist engan veginn hafa ætlað sér að sýna merki sem tengt hefur verið við rasisma. Getty/Hagen Hopkins FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekkert skuli aðhafst vegna merkisins sem VAR-aðstoðardómari sýndi sjónvarpsáhorfendum fyrir leik Þýskalands og Curacao á HM um helgina.
Rétt áður en hver leikur hefst á HM fá áhorfendur innlit í VAR-dómaraherbergið og fyrir leik Þýskalands og Curacao mátti þar sjá Shaun Evans gera ákveðið merki með annarri hendi. Evans gerði eins konar „OK“-merki með því að láta þumal og vísifingur mynda hring en hafa aðra fingur útrétta. Þetta merki hefur verið tengt við öfga hægri hópa og er á lista yfir hatursmerki hjá Anti-Defamation League, samtökum sem berjast gegn hatursglæpum. FIFA gaf út yfirlýsingu vegna málsins í gær og sagði rannsókn hafa leitt í ljós að Evans hefði ekki brotið neinar reglur sambandsins. Evans hefur sjálfur sagt í yfirlýsingu að hann hafi algjörlega óvart og óafvitandi gert merkið. „Ósjálfráður kippur“ „Ég vil taka það skýrt fram að ég gerði ekki viljandi handahreyfingu eða tákn til að koma á framfæri skilaboðum, tengslum, leik eða trú af neinu tagi,“ sagði Evans. „Eina skýringin sem ég get gefið er að hreyfingin hafi verið ósjálfráður, ómeðvitaður kippur og ég var ekki meðvitaður um að hafa gert þetta á þeim tíma. Myndir sem teknar voru síðar í leiknum sýndu að ég endurtók þessa hreyfingu mörgum sinnum á meðan ég hélt á penna milli fingranna. Umfjöllunin í kjölfar þessa atviks endurspeglar einfaldlega ekki hver ég er. Að sjálfsögðu skil ég hvernig hreyfingin hefur verið túlkuð og ég harma það, en ég vil taka það mjög skýrt fram og fullyrða afdráttarlaust að ég gerði ekki af ásettu ráði það handtákn sem gefið er í skyn. Að dæma á heimsmeistaramótinu er mesti heiður á ferli mínum og ég hlakka til að styðja samstarfsfólk mitt það sem eftir er mótsins,“ sagði Evans.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira