Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Sindri Sverrisson skrifar 16. júní 2026 08:31 Vozinha átti sannkallaðan stjörnuleik gegn Spáni í gær. Getty/Patrick Smith Óhætt er að segja að hinn fertugi markvörður Grænhöfðaeyja, Vozinha, hafi slegið í gegn þegar hann hélt markinu hreinu gegn Evrópumeisturum Spánar á HM í fótbolta í gær. Tárin streymdu hjá honum eftir leik.
Vozinha var með um 50 þúsund fylgjendur á Instagram áður en flautað var til leiks í gær en eftir stórkostlega frammistöðu hans gegn einu allra besta landsliði heims eru fylgjendurnir þegar þetta er skrifað orðnir um 6 milljónir. Vozinha benti á það á blaðamannafundi eftir leikinn að hann hefði ekki orðið atvinnumaður fyrr hann var orðinn 25 ára en nú er hann mættur með Grænhöfðaeyjum á fyrsta heimsmeistaramót þessarar hálfrar milljónar manna þjóðar. Tilfinningarnar báru markvörðinn ofurliði eftir leik þegar honum varð hugsað til fólksins síns sem ekki gat verið með honum á leiknum sem fram fór í Atlanta í Bandaríkjunum. 🇨🇻😢 Cape Verde goalkeeper Vozinha: "I cried after the game because I grew up with my grandparents when I was a kid, and they could not be there. They passed away a few years ago. My mum could not be here either for a VISA issue, and the money we had to pay for it. We did not… pic.twitter.com/vbMGHPCQez— EuroFoot (@eurofootcom) June 15, 2026 „Ég grét af því að ég ólst upp hjá ömmu minni og afa og því miður eru þau ekki hér. Þau dóu fyrir nokkrum árum og þau voru allt, allt fyrir mér,“ sagði Vozinha. „Og líka vegna mömmu minnar. Hún komst ekki hingað vegna ... peninganna sem við þurftum að borga fyrir vegabréfsáritunina. Okkur tókst það ekki í tæka tíð. Ég vildi að hún væri hér, en ég er líka mjög glaður og ég er mjög glaður fyrir hönd allra Grænhöfðeyinga,“ sagði Vozinha. Grænhöfðaeyjar eiga nú fína möguleika á að komast upp úr H-riðli og í 32-liða úrslit HM en liðið spilar næst við Úrúgvæ á sunnudagskvöld og svo við Sádi-Arabíu í lokaumferð riðlakeppninnar. Liðin fjögur í riðlinum eru með eitt stig hvert eftir að Úrúgvæ og Sádi-Arabía gerðu 1-1 jafntefli í gærkvöld.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira