Maður dagsins á HM: Bauðst að spila fyrir hitt liðið og á mág í landsliðinu Sindri Sverrisson skrifar 15. júní 2026 10:09 Yasin Ayari skoraði tvö mörk gegn Túnis í nótt - liði sem honum bauðst að spila fyrir. Getty/David Ramos Hinn 22 ára gamli Yasin Ayari sló í gegn í frumraun sinni á HM í nótt þegar hann skoraði tvö lagleg mörk fyrir Svíþjóð í 5-1 stórsigrinum gegn Túnis. Hann hefði getað spilað leikinn fyrir Túnis í staðinn.
Ayari stimplaði sig rækilega inn á mótið og er yngsti markaskorari Svíþjóðar á HM frá því að Tomas Brolin skoraði á HM 1990. Hann sleppti því að fagna fyrra marki sínu í nótt af virðingu við föðurætt sína en pabbi hans er frá Túnis og mamma hans frá Marokkó. „Ég fæddist í Svíþjóð og líður eins og Svía, og ég vil vera fulltrúi Svíþjóðar,“ hefur Ayari sagt um þá ákvörðun sína að velja sænska landsliðið fram yfir norður-afrísku landsliðin. „Það er klikkað að við höfum lent með þeim [Túnisbúum] í riðli,“ sagði Ayari en pabbi hans er ánægður með val sonarins. „Ég vildi að hann myndi spila fyrir Svíþjóð. Hann ætti að vilja gefa til baka til landsins sem annaðist hann,“ sagði pabbi Ayari. Ayari er uppalinn hjá AIK en gekk í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Brighton árið 2023 og skoraði þrjú mörk í 29 deildarleikjum í vetur. Hann er fjölhæfur, sóknarsinnaður miðjumaður og lítur mikið upp til Pep Guardiola: „Ég dýrka hann. Draumurinn minn er að spila í hans liði. Það yrði algjörlega stórkostlegt,“ hefur Ayari látið hafa eftir sér. Kærasta hans, Sandra, er systir liðsfélaga Ayari í sænska landsliðinu, Tottenham-mannsins Dejans Kulusevski. Sá hefur hins vegar átt við þrálát meiðsli að stríða og komst því ekki með á heimsmeistaramótið. Kulusevski hefur þó eflaust glaðst að sjá mág sinn slá í gegn í nótt og þegar Ayari skoraði seinna markið sitt, seint í uppbótartíma, hélt hann ekki aftur af sér heldur fagnaði með liðsfélögum sínum sem nú sigla hraðbyri í átt að 32-liða úrslitum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira