Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2026 23:31 Thomas Tuchel, þá þjálfari Bayern München, fær gult spjald frá franska dómaranum Clement Turpin. Getty/Alexander Hassenstein Clement Turpin hefur verið skipaður dómari í opnunarleik Englands á HM gegn Króatíu á miðvikudaginn og enskir fjölmiðlar voru fljótir að rifja upp orð landsliðsþjálfara síns um þennan ákveðna dómara.
Turpin var einu sinni kallaður „E-flokks“ dómari af þjálfaranum Thomas Tuchel. Breska rikisútvarpið segir frá. Frakkinn sýndi Tuchel, þáverandi stjóra Bayern München, tvenn gul spjöld í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Manchester City í apríl 2023 og sendi hann þar með upp í stúku. England’s World Cup opener will be refereed by Clement Turpin… the official Thomas Tuchel once labelled “Grade E” back in 2023 😳 pic.twitter.com/2BPlShWl9p— Match of the Day (@BBCMOTD) June 14, 2026 Turpin gaf fimm gul spjöld í fyrri hálfleik á Allianz Arena og beint rautt spjald á varnarmann Bayern, Dayot Upamecano, fyrir að brjóta á Erling Haaland sem aftasti maður, en rangstæðudómur frá myndbandsdómara sneri þeirri ákvörðun við. Eftir 4-1 tap Bayern samanlagt gagnrýndi Tuchel dómarann Turpin og sagði: „Tvennt stóðst ekki kröfur – völlurinn var ekki í góðu ásigkomulagi og því miður var dómarinn líka í E-flokki.“ „Ég myndi gefa honum einn af tíu. Hann var alveg hræðilegur. Það er ótrúlegt á þessu stigi. Hann flautaði á allt og ekkert. Allt var á móti okkur,“ sagði Tuchel. „Á endanum vorum við aldrei í aðstöðu til að snúa hlutunum við með þrjá menn á móti okkur. Það er staðreynd.“ Þrátt fyrir fyrri samskipti sín við Tuchel er Turpin talinn einn af bestu dómurum Evrópu en hann dæmdi úrslitaleik Evrópudeildarinnar 2021 og úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2022. Turpin var einnig valinn til að dæma á EM 2024, þar sem hann stjórnaði 0-0 jafntefli Englands og Slóveníu. Bayern Munich boss Thomas Tuchel SLAMS 'Grade E' referee Clement Turpin after German giants' manager was sent off https://t.co/wsb2qHIpWM— Daily Mail Sport (@MailSport) April 20, 2023
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira