Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2026 17:15 Thomas Partey er hér til hægri við hlið Elisha Owusu fyrir landsleik Gana á móti Wales á dögunum. Getty/Nick Potts Thomas Partey mun ekki taka þátt í fyrsta leik Gana á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Toronto þar sem honum hefur verið neitað um landvistarleyfi í Kanada. Hann má aftur á móti spila leiki liðsins í Bandaríkjunum.
Þessi fyrrverandi miðjumaður Arsenal leikur nú með Villarreal en hann var ákærður fyrir fimm tilvik nauðgunar og eitt tilvik kynferðisbrots í júlí 2025 af lögreglunni í London. Í september sama ár neitaði hann sök. Hann var ákærður fyrir tvö ný tilvik nauðgunar í febrúar á þessu ári og neitaði sök í apríl. Gana á að hefja leik á mótinu gegn Panama í Toronto miðvikudaginn 17. júní en staðfest hefur verið að Partey fær ekki að koma til Kanada og mun því ekki geta tekið þátt. The Athletic segir frá. 🚨 Exclusive: Thomas Partey is unavailable to play in Ghana’s opening World Cup match against Panama in Canada on June 17 as he has been denied entry to the country. Full story @TheAthleticFC: https://t.co/AzcsWhz4TC— Dan Sheldon (@Dan_Sheldon_) June 12, 2026 Eftir leikinn gegn Panama spilar Gana við England á Gillette Stadium í Boston þann 23. júní áður en liðið lýkur keppni í L-riðli gegn Króatíu á Lincoln Financial Field í Philadelphia þann 27. júní. Partey er heimilt að taka þátt í báðum þeim leikjum. Hinn 32 ára gamli Partey var valinn í landsliðshóp þjóðar sinnar fyrir mótið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó fyrr í þessum mánuði og kom til Washington D.C. í Bandaríkjunum með liðsfélögum sínum þann 4. júní. Gana-liðið ferðaðist til æfingastöðvar sinnar á Rhode Island á föstudag. „FIFA getur staðfest að leikmaðurinn Thomas Partey mun ekki geta ferðast frá æfingabúðum Gana í Boston, Bandaríkjunum, til Kanada fyrir fyrsta leik þeirra gegn Panama miðvikudaginn 17. júní, þar sem kanadísk stjórnvöld hafa hafnað umsókn hans um vegabréfsáritun. FIFA kemur ekki að innflytjendamálum gestgjafaþjóða, þar með talið afgreiðslu vegabréfsáritana. Eins og á fyrri mótum FIFA ákveða stjórnvöld gestgjafaþjóðarinnar að lokum hverjir fá vegabréfsáritun og fá að koma inn í landið,“ segir í yfirlýsingu frá FIFA til The Athletic. Á vefsíðu kanadískra stjórnvalda kemur fram að „ef þú hefur framið eða verið dæmdur fyrir glæp gætir þú ekki fengið að koma til Kanada.“ Partey hefur verið ákærður en bíður réttarhalda og hefur ekki verið dæmdur.
HM 2026 í fótbolta Gana Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira