Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Andri Broddason skrifar 12. júní 2026 07:38 Oh- Hyun Gyu fagnaði sigurmarkinu vel og innilega og er Suður-Kórea með jafn mörg stig og Mexíkó í riðlinum Julian Finney - FIFA/FIFA via Getty Images Annar leikur A-riðils átti sér stað í nótt á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Þar sigraði Suður-Kórea Tékkland í spennandi leik 2-1.
Suður-Kórea og Tékkland mættust í öðrum leik heimsmeistaramótsins í fótbolta í nótt. Leikurinn var spilaður á Guadalajara-leikvanginum í Mexíkó. Suður-Kórea byrjaði leikinn sterkt og sótti vel að marki Tékklands. Heung-Min Son var hættulegasti maður Suður-Kóreu í fyrri hálfleik en þar vörðust bæði lið mjög vel. Staðan var því markalaus þegar gengið var inn í leikhlé. Þó svo að Kórea hafi verið sterkari aðilinn komust Tékkar yfir í leiknum. Þeir fengu innkast sem þeir köstuðu langt inn í teiginn og þar reis Ladislav Krejcí manna hæst og stangaði boltann inn. Kórea þurfti að sækja enn meira eftir markið en Tékkland var búið að verjast vel í leiknum. Meiri ákefð færðist í sóknarleik Kóreu og náði liðið að jafna leikinn skömmu síðar með góðri sókn. Lee Kang-In kom með góða sendingu inn fyrir vörn Tékka þar sem Hwang In-Beom fíflaði markmanninn sem var kominn í hann og náði að skora þrátt fyrir laust skot. Tékkland var greinilega sterkari aðilinn í loftinu þar sem Tomas Soucek náði að skalla boltann inn eftir góða aukaspyrnu. Það kom hins vegar í ljós að hann var rangstæður og því var markið réttilega dæmt af. Staðan því ennþá jöfn, 1-1. Á 80. mínútu keyrir Hwang In-Beom hjá Kóreu upp hægri kantinn og gefur sendingu inn í teig þar sem Oh Hyeon-Gyu getur lagt boltann rólega í netið. Þetta var mikilvægt mark fyrir Kóreu og þeir voru einu marki yfir þegar aðeins tíu mínútur voru eftir af leiknum. Dramatíkin var þó ekki búin. Tékkar byrjuðu að sækja af meiri ákefð og vildu skora jöfnunarmarkið. Tékkland fékk innkast á svipuðum stað og í fyrsta markinu og henti aftur löngum bolta inn í teiginn. Boltinn datt fyrir fætur Adam Hlozek þar sem hann skaut af stuttu færi en markmaður Kóreu, Kim Seung-Gyu, varði glæsilega á línunni. Þetta reyndist lokatilraun Tékklands í leiknum og endaði leikurinn með sigri Suður-Kóreu 2-1. Mexíkó og Suður-Kórea sitja núna efst í A-riðli með þrjú stig hvor en næsti leikur í A-riðli er milli þeirra og má búast við æsispennandi leik.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira