Elstir og yngstir á HM Valur Páll Eiríksson skrifar 11. júní 2026 12:46 Craig Gordon er elstur á HM og Cristiano Ronaldo næst elstur. Spenna er fyrir því að sjá 17 ára gamlan Gilberto Mora og 18 ára gamlan Lennart Karl. Samsett/Getty Aldursbilið á heimsmeistaramóti karla í fótbolta sem hefst í kvöld spannar 26 ár. Sá elsti er 43 ára og sá yngsti 17 ára. Yngsti leikmaður mótsins gæti spilað í kvöld.
Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst í kvöld er Mexíkó tekur á móti Suður-Afríku á Azteca-vellinum í Mexíkóborg. Um er að ræða endurtekningu á opnunarleik mótsins í Suður-Afríku árið 2010 en þá skildu liðin jöfn 1-1 í Jóhannesarborg. Siphiwe Tshabalala skoraði glæsilegt mark til að koma Suður-Afríku yfir en mark Rafael Márquez seint í leiknum gerði að verkum að liðin skildu jöfn. Mexíkóar verða á heimavelli í kvöld og líklegt þykir að yngsti leikmaður komandi móts komi við sögu. Miðjumaðurinn Gilberto Mora, sem hefur þegar leikið yfir 50 leiki fyrir Tijuana í heimalandinu, þykir mikið efni og mun leika hlutverk hjá mexíkóska liðinu í sumar. Hann er sá eini á mótinu sem hefur ekki náð 18 ára aldri. Gilberto Mora, Mexíkó, 17 ára Hugo Sochurek, Tékkland, 18 ára Lennart Karl, Þýskaland, 18 ára Ibrahim Mbaye, Senegal, 18 ára Hamza Abdelkarim, Egyptaland, 18 ára Bara Sapoko Ndiaye, Senegal, 18 ára Mladen Jurkas, Bosnía, 18 ára Ayyoub Bouaddi, Marokkó, 18 ára Kerim Alajbegovic, Bosnía, 18 ára Rayan Elloumi, Túnis, 18 ára Þegar farið er á hinn enda kúrvunnar er Craig Gordon, markvörður Hearts og Skotlands, sá elsti á komandi móti, 43 ára gamall. Það liggur ekki ljóst fyrir hver verður aðalmarkvörður Skota á komandi móti en auk Gordons eru Angus Gunn og Liam Kelly markverðir í hópi Steve Clarke fyrir komandi mót. Skotar hefja leik gegn Haíti þann 14 júní. Gordon verður næst elstur til að spila í sögu HM ef hann tekur þátt, á eftir Essam El Hadary sem lék 45 ára gamall með Egyptum á HM 2018. Á sama móti lék markvörðurinn Faryd Mondragon fyrir Kólumbíu, 43 ára. Cristiano Ronaldo er næst elstur á mótinu, 41 árs, og þá eru fimm til viðbótar sem eru fertugir á mótinu, þar á meðal Luka Modric og Edin Dzeko. Craig Gordon, Skotland, 43 ára Cristiano Ronaldo, Portúgal, 41 árs Guillermo Ochoa, Mexíkó, 40 ára Luka Modric, Króatía, 40 ára Edin Dzeko, Bosnía, 40 ára Manuel Neuer, Þýskaland, 40 ára Vozinha, Grænhöfðaeyjar, 40 ára Fernando Muslera, Úrúgvæ, 39 ára Yuto Nagatomo, Japan, 39 ára Hernán Galindez, Ekvador, 39 ára
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira