Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Bylgjan og FÍBÚT 8. júní 2026 09:12 Auður Ína Björnsdóttir tekur þátt í leshringjum og segir að bækur búi til samtöl sem fátt annað gerir. Sumarbókaveisla íslenskra leshringja stendur nú yfir með spennandi vinningum. Auður Ína Björnsdóttir man vel eftir því þegar lestur hætti að vera verkefni og varð að ánægju. Eftir mörg ár af skólabókum þurfti hún í raun að læra lesa upp á nýtt og finna aftur gleðina sem felst í því að sökkva sér ofan í góða bók. Nú stendur yfir sumarbókaveisla íslenskra leshringja þar sem heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka auk veitinga fyrir leshringinn á Facebooksíðu Bylgjunnar. Í dag er Auður Ína ófeimin að kalla sig lestrarhest. Hún les á íslensku og ensku, tekur þátt í leshringjum og segir að bækur búi til samtöl sem fátt annað gerir. „Það er deild upplifun að lesa með öðru fólki. Ég les yfirleitt með öðrum, vinum og vinkonum bæði í Bandaríkjunum og hér heima,“ segir Auður Ína og telur lestur skapa allt aðra tengingu milli fólks en sjónvarpsgláp. „Það þarf meira samtal með lestri. Svo er sjónvarp oft svo heilalaust. Bækur geta reyndar verið það líka og þær eru stundum mitt „escape“ en maður þarf samt að hugsa aðeins meira við lestur en áhorf." „Við erum svo stórar persónur og alls ekki einhliða og getum tengt við margar persónur úr bókum, jafnvel morðingja í glæpasögum. Það kemur alltaf gott samtal út frá bókum.“ Vill jarðtengja sig með lestri Ína er 22 ára og telur að sífellt fleiri á hennar aldri séu að leita í lestur til að draga úr skjátíma og finna mótvægi við stöðugt áreiti samfélagsmiðla. „Á samfélagsmiðlum eru margir að opna sig um lestur og fólk er að leita að tómstundum sem snúast ekki um að vera í símanum eða horfa sjónvarp,“ segir Ína. Hún hafi sjálf uppgötvað nýjan heim þegar hún hætti að líta á lestur sem skylduverkefni tengt skóla. „Það breytir viðhorfinu að þurfa að lesa. Ég þurfti að vinna í að læra að lesa upp á nýtt þegar ég var búin með skólabækurnar. Um leið og maður fer að lesa sér til yndis er hægt að fara inn í svo marga öðruvísi heima.” Með þátttöku á skráningavef á Facebook síðu Bylgjunnar geta áhugasamir lesendur átt kost á að vinna 20 nýjar bækur fyrir sumarlesturinn. Hverskonar bækur lestu helst? „Ég er með BA-gráðu í sálfræði og hef lesið mikið af sálfræðibókum, sjálfshjálparbókum og öðru lesefni sem tengist mannshuganum og hvernig hann starfar. En svo les ég líka mikið af morð- og glæpasögum, þrillerum og ástarsögum. Eva Björg Ægisdóttir er í miklu uppáhaldi hjá mér. Mér finnst hún frábær og hef lesið allar bækurnar hennar. Stefán Máni er líka á leslistanum, ásamt fleiri höfundum sem ég hef lengi ætlað mér að lesa. Ég ætla klárlega að lesa meira íslenskt,“ segir hún og bætir við að enska hafi legið betur fyrir henni þegar hún byrjaði að lesa sér til yndis. „Ég varð nefnilega smá manísk í byrjun og vildi lesa eins mikið og ég gat og fannst það auðveldara á ensku. Svo áttaði ég mig á að þetta er ekki keppni og þá fannst mér gott að hægja aðeins á mér.“ „Ég er núna að lesa Karítas án titils eftir Kirstínu Marju Baldursdóttur, uppáhalds bókina hennar mömmu. Ég fékk hana í jólagjöf en vildi geyma hana þar til ég hefði góðan tíma. Hún er áhugaverður gluggi inn í annan heim. Huldukonan eftir Fríðu Ísberg er líka á leslistanum fyrir sumarið. Hvar leitarðu að nýju lesefni? „Ég nota til dæmis Goodreads appið sem er samfélagsmiðill fyrir bækur. Þú setur inn hvað þú ert búin að lesa og getur ritað umsögn. Ef ég sé bók sem ég hef áhuga á set ég hana beint á leslistann. Ég fæ líka hugmyndir af Booktok á TikTok og frá fjölskyldu og vinum. Það að læra að lesa mér til yndis hefur verið eitt það mikilvægasta í mínu lífi,“ segir Auður Ína. Sumarbókaveislan stendur yfir í viku og eru bókaormar hvattir til að skrá sig í leikinn hér. 15 heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka með 20 bókum að verðmæti kr. 75.000, samtals 300 nýjar bækur. Fimm þessara vinningshafa hljóta að auki gjafakort að upphæð kr. 25.000 sem nýta má til veitingakaupa fyrir næsta leshring. Heildarverðmæti vinninga er kr. 1.250.000. Fjöldi áhugaverðra, spennandi, fræðandi og skemmtilegra bóka kom út fyrir sumarið. Menning Bókaútgáfa Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Hitavörn, blástursvörn eða UV-vörn? Hvað þarf hárið þitt í raun og veru? Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Glæsilegir vinningar í boði í Sumarleik Kjarnafæðis Bylgjulestin brunar á Kótelettuna Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Bylgjulestin fer norður á morgun Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Ný bókunarvél hjá Úrval Útsýn og fjöldi spennandi ferðamöguleika Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Myndaveisla: Fjör í Hafnarfirði um helgina Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Sjá meira
Nú stendur yfir sumarbókaveisla íslenskra leshringja þar sem heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka auk veitinga fyrir leshringinn á Facebooksíðu Bylgjunnar. Í dag er Auður Ína ófeimin að kalla sig lestrarhest. Hún les á íslensku og ensku, tekur þátt í leshringjum og segir að bækur búi til samtöl sem fátt annað gerir. „Það er deild upplifun að lesa með öðru fólki. Ég les yfirleitt með öðrum, vinum og vinkonum bæði í Bandaríkjunum og hér heima,“ segir Auður Ína og telur lestur skapa allt aðra tengingu milli fólks en sjónvarpsgláp. „Það þarf meira samtal með lestri. Svo er sjónvarp oft svo heilalaust. Bækur geta reyndar verið það líka og þær eru stundum mitt „escape“ en maður þarf samt að hugsa aðeins meira við lestur en áhorf." „Við erum svo stórar persónur og alls ekki einhliða og getum tengt við margar persónur úr bókum, jafnvel morðingja í glæpasögum. Það kemur alltaf gott samtal út frá bókum.“ Vill jarðtengja sig með lestri Ína er 22 ára og telur að sífellt fleiri á hennar aldri séu að leita í lestur til að draga úr skjátíma og finna mótvægi við stöðugt áreiti samfélagsmiðla. „Á samfélagsmiðlum eru margir að opna sig um lestur og fólk er að leita að tómstundum sem snúast ekki um að vera í símanum eða horfa sjónvarp,“ segir Ína. Hún hafi sjálf uppgötvað nýjan heim þegar hún hætti að líta á lestur sem skylduverkefni tengt skóla. „Það breytir viðhorfinu að þurfa að lesa. Ég þurfti að vinna í að læra að lesa upp á nýtt þegar ég var búin með skólabækurnar. Um leið og maður fer að lesa sér til yndis er hægt að fara inn í svo marga öðruvísi heima.” Með þátttöku á skráningavef á Facebook síðu Bylgjunnar geta áhugasamir lesendur átt kost á að vinna 20 nýjar bækur fyrir sumarlesturinn. Hverskonar bækur lestu helst? „Ég er með BA-gráðu í sálfræði og hef lesið mikið af sálfræðibókum, sjálfshjálparbókum og öðru lesefni sem tengist mannshuganum og hvernig hann starfar. En svo les ég líka mikið af morð- og glæpasögum, þrillerum og ástarsögum. Eva Björg Ægisdóttir er í miklu uppáhaldi hjá mér. Mér finnst hún frábær og hef lesið allar bækurnar hennar. Stefán Máni er líka á leslistanum, ásamt fleiri höfundum sem ég hef lengi ætlað mér að lesa. Ég ætla klárlega að lesa meira íslenskt,“ segir hún og bætir við að enska hafi legið betur fyrir henni þegar hún byrjaði að lesa sér til yndis. „Ég varð nefnilega smá manísk í byrjun og vildi lesa eins mikið og ég gat og fannst það auðveldara á ensku. Svo áttaði ég mig á að þetta er ekki keppni og þá fannst mér gott að hægja aðeins á mér.“ „Ég er núna að lesa Karítas án titils eftir Kirstínu Marju Baldursdóttur, uppáhalds bókina hennar mömmu. Ég fékk hana í jólagjöf en vildi geyma hana þar til ég hefði góðan tíma. Hún er áhugaverður gluggi inn í annan heim. Huldukonan eftir Fríðu Ísberg er líka á leslistanum fyrir sumarið. Hvar leitarðu að nýju lesefni? „Ég nota til dæmis Goodreads appið sem er samfélagsmiðill fyrir bækur. Þú setur inn hvað þú ert búin að lesa og getur ritað umsögn. Ef ég sé bók sem ég hef áhuga á set ég hana beint á leslistann. Ég fæ líka hugmyndir af Booktok á TikTok og frá fjölskyldu og vinum. Það að læra að lesa mér til yndis hefur verið eitt það mikilvægasta í mínu lífi,“ segir Auður Ína. Sumarbókaveislan stendur yfir í viku og eru bókaormar hvattir til að skrá sig í leikinn hér. 15 heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka með 20 bókum að verðmæti kr. 75.000, samtals 300 nýjar bækur. Fimm þessara vinningshafa hljóta að auki gjafakort að upphæð kr. 25.000 sem nýta má til veitingakaupa fyrir næsta leshring. Heildarverðmæti vinninga er kr. 1.250.000. Fjöldi áhugaverðra, spennandi, fræðandi og skemmtilegra bóka kom út fyrir sumarið.
Nú stendur yfir sumarbókaveisla íslenskra leshringja þar sem heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka auk veitinga fyrir leshringinn á Facebooksíðu Bylgjunnar.
Sumarbókaveislan stendur yfir í viku og eru bókaormar hvattir til að skrá sig í leikinn hér. 15 heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka með 20 bókum að verðmæti kr. 75.000, samtals 300 nýjar bækur. Fimm þessara vinningshafa hljóta að auki gjafakort að upphæð kr. 25.000 sem nýta má til veitingakaupa fyrir næsta leshring. Heildarverðmæti vinninga er kr. 1.250.000.
Menning Bókaútgáfa Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Hitavörn, blástursvörn eða UV-vörn? Hvað þarf hárið þitt í raun og veru? Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Glæsilegir vinningar í boði í Sumarleik Kjarnafæðis Bylgjulestin brunar á Kótelettuna Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Bylgjulestin fer norður á morgun Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Ný bókunarvél hjá Úrval Útsýn og fjöldi spennandi ferðamöguleika Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Myndaveisla: Fjör í Hafnarfirði um helgina Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Sjá meira