Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2026 11:31 Lionel Messi missti af síðustu leikjum Inter Miami en ætti að ná fyrsta leik á HM. Getty/Carmen Mandato Lionel Messi æfði einn á fyrstu æfingu Argentínu í Bandaríkjunum á meðan hann jafnar sig af meiðslum í aftanverðu læri.
Fyrirliði Inter Miami og argentínska landsliðsins hefur verið frá keppni vegna meiðsla í vinstra aftanverðu læri síðan 24. maí en búist er við að hann nái sér í tæka tíð fyrir opnunarleik Argentínu á heimsmeistaramótinu gegn Alsír þann 16. júní. Hinn 38 ára gamli Messi kom til móts við landsliðið í æfingabúðum þess í Kansas City og fór á sérstaka einkaæfingu á mánudag. Emiliano „Dibu“ Martínez, Nico Paz, Leandro Paredes, Nico González, Thiago Almada, Gonzalo Montiel og Nahuel Molina glíma einnig við meiðsli og æfðu sér. „Leikmennirnir sem glíma við smávægileg meiðsli halda áfram að vinna með sjúkraþjálfarateyminu að sérstökum æfingum á vellinum og gengur vel,“ sagði argentínska knattspyrnusambandið. Lionel Scaloni, þjálfari Argentínu, fékk góðar fréttir fyrir vináttuleikinn gegn Hondúras á laugardaginn þar sem Cristian „Cuti“ Romero og Julián Álvarez kláruðu æfingu mánudagsins eftir að hafa fengið grænt ljós. Varnarmaður Tottenham, Cuti, hefur jafnað sig af liðbandstognun í hægra hné á meðan framherji Atlético Madrid, Álvarez, er kominn aftur á fullt eftir að hafa verið frá keppni síðan 5. maí vegna tognunar á ökkla. Argentína mun spila sinn síðasta upphitunarleik gegn íslenska landsliðinu í Auburn, Alabama, þann 9. júní áður en titilvörnin hefst gegn Alsír viku síðar í Kansas City. Það eru ekki miklar líkur á því að Messi taki einhvern þátt í þeim leiknum á móti Íslandi en hann verður líklegast í stúkunni þetta kvöld. Argentínumenn munu í riðlakeppni HM einnig mæta Austurríki 22. júní og Jórdaníu 27. júní í Arlington, Texas.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira