Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2026 12:32 Jorgen Strand Larsen fagnar marki í sigri Norðmanna á Svíum í Osló í gærkvöldi. Getty/Mateusz Slodkowski Sænska karlalandsliðið í fótbolta réð ekkert við norska landsliðið í æfingaleik í gærkvöldi og í Svíþjóð bregðast sænskir fjölmiðlar harkalega við þessum skelli rétt fyrir heimsmeistaramótið. „
Norðmenn eru orðnir góðir – Óbærileg upplifun,“ skrifaði Expressen „Blágulir yfirkeyrðir í Noregi: Vonbrigði – Mjög erfitt kvöld,“ skrifaði Aftonbladet. Þessar tilvitnanir prýða sænsku dagblöðin eftir að Noregur vann 3-1 sigur á Svíum á Ullevaal í leik þar sem lærisveinar Ståle Solbakken voru með algjöra yfirburði. „Það er erfitt að trúa því að sumir þessara leikmanna hafi verið með þegar Svíþjóð sigraði Úkraínu og Pólland. Ég sakna bara alls. Noregur var betri í öllu,“ sagði sænski lýsandinn frá TV4, Olof Lundh, við norska ríkisútvarpið eftir leikinn. „Noregur hefði kannski átt að skora þrjú eða fjögur mörk í viðbót, svo miklir voru yfirburðirnir. Svíþjóð vantaði nokkra af sínum bestu leikmönnum, en Noreg vantaði jú [Martin] Ödegaard og [Erling] Haaland. Þannig að þetta var afleitt framlag, það held ég að flestir leikmenn geti skrifað undir“ Fyrirsagnirnar í sænsku blöðunum voru allar á einn veg. Norðmenn voru að leika sér að þeim.Expressen/Aftonbladet Í pistli sínum eftir leik skrifar blaðamaður Expressen að valdaskipti séu í gangi í skandinavískum íþróttum. „Það er bara að viðurkenna það. Noregur er orðinn góður í heilum haug af íþróttum, með sögulega pirrandi íshokkístöðuna sem nýjan sársaukapunkt,“ skrifaði Noa Bachner en Norðmenn voru um helgina að tryggja sér bronsverðlaun á HM í íshokkí. Sænsku stórblöðin voru nánast í áfalli eftir fyrri hálfleikinn á Ullevaal, þar sem Noregur lék sér að Svíþjóð frá fyrstu sekúndu og leiddi 3-0 í hálfleik, eftir tvö mörk frá Jørgen Strand Larsen og eitt mark frá Antonio Nusa. „Noregur er miklu, miklu betri en við. Það er klassamunur. Það er svolítið sárt akkúrat núna. Það er ekkert sem virkar vel. Þeir leika sér svolítið í kringum okkur,“ sagði fyrrverandi sænska landsliðshetjan Fredrik Ljungberg hjá sænska Viaplay. „Þetta er sögulega slakt,“ sagði lýsandinn hjá Viaplay, Anders Bjuhr, um sænska leikinn, samkvæmt Expressen. „Ég verð virkilega reiður þegar ég sit og horfi á þetta. Það er sárt það sem ég sagði áðan, um að Noregur leiki sér að okkur í fótbolta. Ég hélt ég myndi aldrei segja þessi orð nokkurn tímann. Hvað hefur gerst með sænskan fótbolta og hvað hefur gerst með norskan fótbolta? Þeir eru jú klassa betri en við hér í dag,“ sagði Ljungberg áfram, samkvæmt Aftonbladet, áður en hann bætti við: „Við eigum að vera alsæl með að staðan sé ekki 6-0.“
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Sjá meira