Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. maí 2026 09:03 Khadija Shaw er ekki á förum frá Manchester City. Lewis Storey/Getty Images Eftir að hafa verið orðuð við brottför til Chelsea tilkynnti markadrottningin Khadija Shaw um nýjan samning sinn við Manchester City í miðri skrúðgöngu liðsins. Hún verður áfram hjá Englandsmeisturunum, sem launahæsta knattspyrnukona heims.
Samningur Shaw átti að renna út í sumar og búist var við því að hún yrði ekki áfram. Chelsea var tilbúið að gera hana að launahæstu knattspyrnukonu ensku deildarinnar, með tilboði upp á rúma milljón punda í árslaun. Eftir margra mánaða viðræður tókst Manchester City hins vegar að sannfæra Shaw um að vera áfram hjá félaginu. Líklega hefur launapakkinn, upp á meira en 1,2 milljónir punda á ári, hjálpað eitthvað. „Ég er enn hér, ég er enn hungruð og ég vil hvergi annars staðar vera,“ sagði Shaw þegar hún tilkynnti samninginn í skrúðgöngu Manchester City í gær. What. A. Moment. pic.twitter.com/daHgFqyYQT— Manchester City Women (@ManCityWomen) May 25, 2026 Samkvæmt Sky Sports verður Shaw launahæsta knattspyrnukona heims og tekur þar með fram úr Catarina Macario, leikmanni San Diego Wave í Bandaríkjunum, sem fær litlu minna en 1,2 milljónir punda árlega. Shaw er vel að þessu komin en hún hefur verið markahæst í ensku deildinni síðustu þrjú ár og hjálpaði City að brjóta loks fimm ára sigurhefð hjá Chelsea.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn LASK - Liverpool | Mæta laskaðir til leiks Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki LASK - Liverpool | Mæta laskaðir til leiks Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Sjá meira