Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Lovísa Arnardóttir skrifar 3. maí 2026 09:04 Shakira flutti alla sína helstu slagara á tónleikunum. Vísir/EPA Söngkonan Shakira kom í gær fram á ókeypis tónleikum á Copacabana-ströndinni í Rio de Janeiro. Milljónir voru viðstaddar en borgaryfirvöld greiddu fyrir tónleikana. Áður hafa Madonna og Lady Gaga komið fram á ókeypis tónleikum í borginni.
Shakira hefur verið á tónleikaferðalagi frá því árið 2024 og voru tónleikarnir hluti af því. Tónleikaferðalagið kallast Las Mujeres Ya No Lloran eftir samnefndri plötu sem kom út árið 2024. Shakira kom á svið samkvæmt frétt AP um klukkan 11 sem var um klukkutíma á eftir áætlun. Hún talaði um fyrstu skiptin sín í Brasilíu og hversu vel henni var tekið fyrir um þremur áratugum. „Ég kom hingað 18 ára gömul og mig dreymdi um að syngja fyrir ykkur,“ sagði Shakira við mannfjöldann skömmu eftir að hún kom á svið. Shakira söng lög á borð við Hips Don’t Lie, La Tortura og La Bicicleta. Hún endaði á BZRP Music Sessions #53/66, sem kom út eftir skilnað hennar og spænska fótboltamannsins Gerard Piqué. Tvær milljónir á tónleikunum Borgarstjóri Rio, Eduardo Cavaliere, sagði á X að tvær milljónir manna hefðu sótt tónleikana. „Úlfynjan skráði nafn sitt á spjöld sögunnar í Rio,“ skrifaði hann og vísaði þar til smells Shakiru frá 2009, Shewolf. Ókeypis tónleikarnir eru liður í tilraun borgaryfirvalda til að efla efnahagslífið. Í frétt AP segir að tónleikarnir gætu skilað um 777 milljónum reala (um 155 milljónum Bandaríkjadala), samkvæmt rannsókn borgaryfirvalda og Riotur, ferðamálafyrirtækis sveitarfélagsins. Það sé aðallega vegna peninga sem ferðamenn verja á veitingastöðum, hótelum og í verslunum. Borgarstjóri áætlar að um tvær milljónir hafi verið viðstaddar tónleikana. Vísir/EPA Fjölgun ferðamanna Samkvæmt fréttinni hefur ferðamönnum fjölgað í maí, samhliða tónleikunum 2024 og 2025, samanborið við 2023, samkvæmt gögnum frá borgaryfirvöldum. Árið 2024 var vöxturinn 34,2 prósent þann 1. maí, rétt fyrir tónleikana, samanborið við árið áður. Árið 2025 var aukningin 90,5 prósent samanborið við 2023. Fyrir tónleika Shakiru sagði Airbnb í yfirlýsingu 22. apríl að fyrirtækið sæi aukningu á gestum sem búist væri við að ferðuðust frá mismunandi hlutum Brasilíu, Rómönsku Ameríku og jafnvel evrópskum höfuðborgum eins og París og London.
Brasilía Tónlist Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Þórhallur Steingrímsson fór ásamt konu sinni, Mariu Gomes Rodrigues, á ókeypis tónleika með söngkonunni Lady Gaga í gær í Rio de Janeiro í Brasilíu. Áætlað er að tvær milljónir manna hafi verið viðstödd tónleikana sem fóru fram í gær. Þórhallur varð ekki var við handtökur vegna sprengjutilræða en segir öryggisgæsluna hafa verið gríðarmikla. 4. maí 2025 19:53 Milljón manns í Rio til að sjá ókeypis Lady Gaga tónleika Mikill fjöldi er nú kominn saman í Rio de Janeiro í Brasilíu til að fara á ókeypis tónleika með söngkonunni Lady Gaga. Samkvæmt brasilískum yfirvöldum var búist við allt að 1,6 milljón manns á Copacabana ströndina þar sem tónleikarnir fara fram. 3. maí 2025 23:03 Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Fleiri fréttir Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira
Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Þórhallur Steingrímsson fór ásamt konu sinni, Mariu Gomes Rodrigues, á ókeypis tónleika með söngkonunni Lady Gaga í gær í Rio de Janeiro í Brasilíu. Áætlað er að tvær milljónir manna hafi verið viðstödd tónleikana sem fóru fram í gær. Þórhallur varð ekki var við handtökur vegna sprengjutilræða en segir öryggisgæsluna hafa verið gríðarmikla. 4. maí 2025 19:53
Milljón manns í Rio til að sjá ókeypis Lady Gaga tónleika Mikill fjöldi er nú kominn saman í Rio de Janeiro í Brasilíu til að fara á ókeypis tónleika með söngkonunni Lady Gaga. Samkvæmt brasilískum yfirvöldum var búist við allt að 1,6 milljón manns á Copacabana ströndina þar sem tónleikarnir fara fram. 3. maí 2025 23:03