Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. apríl 2026 15:09 Sigmar Vilhjálmsson ræddi áfengismeðferð sína og edrúmennsku í Hlaðfréttum síðustu viku. Vísir/Vilhelm Sigmar Vilhjálmsson segist lengst af hafa kunnað að fara með áfengi en síðan misst tökin. Hann hafi þá byrjað að nota það til að deyfa sig og flýja erfið mál. Hann sé fyrstur í vinahópi sínum til að fara í meðferð.
Sigmar, betur þekktur sem Simmi Vill, mætti í síðustu viku í hlaðvarpið Hlaðfréttir, sem Hraðfréttabræðurnir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson halda úti, og ræddi þar nýlega áfengismeðferð sem hann fór í, edrúmennsku sína og ýmislegt annað. „Það má ekki bjóða þér Thule?“ spurði Benni í byrjun þáttar. „Nei, það er búið,“ svaraði Sigmar. „Er það búið að eilífu eða bara tímabíl?“ spurði Fannar þá. „Hann fór í meðferð,“ sagði Benni þá hneykslaður. „Strákar mínir, ég var fyrstur í mark af mínum vinahóp,“ sagði Simmi svo. „Yndislegur vímugjafi ef þú kannt að fara með hann“ „Hvernig var í meðferð? Var þetta gaman? Við þurfum ekkert að ræða það ef þú vilt það ekki,“ sagði Fannar í kjölfarið. „Ég er til í að ræða það. Ég get svarað því játandi þó að það sé ekkert gaman að vera í meðferð. Þetta er ákvörðun sem maður tekur og svo þarf maður að bíða eftir því að komast að og þegar maður er kominn að þá er það gaman,“ sagði Simmi. „Það er líka gaman þegar þetta er búið að hugsa til baka. Það er nú bara þannig að áfengi er yndislegur vímugjafi ef þú kannt að fara með hann. Meirihlutann af mínu lífi kunni ég að fara með hann en síðan gerist það að maður fer að nota hann ekki til að hafa gaman heldur meira til þess að flýja, deyfa sig og nenna ekki að tækla einhver mál,“ sagði hann. „Þegar það er farið að gerast þá er það farið að stjórna þér og þá gerirðu vitlausa hluti. Vonandi að menn átti sig á því áður en það verður alvarlegra, því það verður alltaf alvarlegra og alvarlegra. Að því sögðu er ég enginn fanatíker á þetta. Ég á einn stærsta sportbar á landinu og það böggar mig ekki að annað fólk fái sér áfengi, það er ekki svoleiðis.“ Leið til að takast á við kvíða, áhyggjur og raunveruleikann „Ég er bara rétt að byrja í minni edrúmennsku, kominn sex mánuði inn og ég á allt eftir ólært þannig það þýðir ekkert fyrir mig að halda einhverja predikun,“ sagði Simmi svo. „Í AA-bókinni er áfengi nefnt einu sinni, þetta er ekki áfengistengt – þetta er hausinn. Við viljum finna fyrir áhrifum til að geta slakað á til að takast á við kvíða, áhyggjur eða raunveruleikann.“ Sigmar ræddi síðan um trúna, bænir og mikilvægi jákvæðrar hugsunar í tengslum við edrúmennskuna. Eftir það fór hann síðan um víðan völl, ræddi þingferilinn sem aldrei varð af, fyrirtækjarekstur á Íslandi og margt annað. Hægt er að hlusta á Hlaðfréttaþáttinn með Simma í heild sinni hér að neðan. Þeir félagar ræða í þáttum sínum við hina ýmsu einstaklinga og stefna að lifandi upptöku í Austurbæ 9. maí.
Áfengi Fíkn Tengdar fréttir Simmi Vill í meðferð „Áfengi er hætt að vera gleðigjafi og ég hef notað það sem flóttaleið í stað þess að nálgast það af gleði og hvað þá hófsemi. Flóttaleiðirnar með áfengi hafa verið margvíslegar og engar af þeim leiðum hafa verið farsælar. Það hefur hvorki verið farsælt né heilsusamlegt, og því er þetta skref bæði rétt og tímabært.“ 24. nóvember 2025 21:58 Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, hefur fest kaup á bæjarblaðinu Mosfellingi og tekur við rekstri þess með það að markmiði að byggja ofan á sterkan grunn blaðsins. Þá hefur nýr ritstjóri verið ráðinn til starfa samhliða kaupunum. 16. apríl 2026 13:28 Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Hlaðvarpið 70 mínútur í umsjón Sigmars Vilhjálmssonar og Huga Halldórssonar er komið í hlé eftir fjögurra ára göngu. Þeir félagar séu báðir uppteknir en Simmi er jafnframt kominn í nýtt starf sem feli í sér hagsmunaárekstur við hlaðvarpsútgáfu. 9. mars 2026 10:07 Mest lesið Dolly Parton látin Lífið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Stjörnum prýtt svitapartý Lífið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Bíó og sjónvarp Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Tónlist Harington tekur við af uppteknum Hoult Bíó og sjónvarp Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Sjá meira
Simmi Vill í meðferð „Áfengi er hætt að vera gleðigjafi og ég hef notað það sem flóttaleið í stað þess að nálgast það af gleði og hvað þá hófsemi. Flóttaleiðirnar með áfengi hafa verið margvíslegar og engar af þeim leiðum hafa verið farsælar. Það hefur hvorki verið farsælt né heilsusamlegt, og því er þetta skref bæði rétt og tímabært.“ 24. nóvember 2025 21:58
Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, hefur fest kaup á bæjarblaðinu Mosfellingi og tekur við rekstri þess með það að markmiði að byggja ofan á sterkan grunn blaðsins. Þá hefur nýr ritstjóri verið ráðinn til starfa samhliða kaupunum. 16. apríl 2026 13:28
Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Hlaðvarpið 70 mínútur í umsjón Sigmars Vilhjálmssonar og Huga Halldórssonar er komið í hlé eftir fjögurra ára göngu. Þeir félagar séu báðir uppteknir en Simmi er jafnframt kominn í nýtt starf sem feli í sér hagsmunaárekstur við hlaðvarpsútgáfu. 9. mars 2026 10:07