Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Agnar Már Másson skrifar 25. apríl 2026 09:51 Kosningarnar á Gasa eru að mestu taldar táknrænar. Þær fara aðeins fram í Deir al-Balah, einu af fáum svæðum á ströndinni sem hafa ekki orðið fyrir innrás Ísraelshers. Getty Sveitarstjórnarkosningar standa yfir í Palestínu í dag, bæði á hernumda Vesturbakka en einnig ganga örfáir að kjörborðinu á Gasaströndinni. Þetta er fyrsta sinn sem kosningar eru haldnar á Gasa frá því að Hamas vann þingkosningar 2006.
Rúmlega milljón manns eru á kjörskrá, þar af um 70 þúsund á Gasa, samkvæmt yfirkjörstjórn sem hefur aðsetur í Ramallah á Vesturbakkanum. Seinast voru haldnar kosningar á Gasaströndinni árið 2006, þegar Hamas-samtökin unnu kosningasigur í þingkosningum og lögðu svo undir sig Gasaströndina. Fatah héldu samt yfirráðum sínum yfir Vesturbakkanum og þar með varð landsvæði sem Palestínumenn gerður tilkall til ekki aðeins tvískipt milli Palestínumanna og Ísraela, heldur þrískipt. Enginn listi hefur tengsl við Hamas.EPA/HAITHAM IMAD Síðan 2006 hafa Hamas-samtökin sniðgengið allar kosningar sem haldnar hafa verið í Palestínu. Síðast voru haldnar kosningar á Vesturbakkanum 2022. Flestir framboðslistar í kosningunum eru hliðhollir Fatah-flokki Mahmoud Abbas forseta eða bjóða sig fram sem óháðir. Engir listar eru tengdir Hamas-samtökunum, sem enn stjórna þeim tæplega helmingi Gasasvæðisins sem ísraelski herinn hefur ekki lagt undir sig. Hamas er samt vinsælasta fylkingin samkvæmt skoðanakönnunum meðal Palestínumanna bæði á Gasa og Vesturbakkanum, að sögn DW. Í mörgum borgum á Vesturbakkanum, þar á meðal Nablus og Ramallah, er sjálfkjörið þar sem aðeins einn listi hefur verið lagður fram. Kosningarnar á Gasa þykja táknrænar en þar eru um 70 þúsund manns á kjörskrá. Enginn listi tengist Hamas.EPA/HAITHAM IMAD Í kosningunum á Vesturbakkanum verða kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnir sem hafa umsjón með vatnsveitu, vegum og rafmagni en setja ekki lög. Kosningarnar á Gasa eru að mestu taldar táknrænar. Þær fara aðeins fram í Deir al-Balah, einu af fáum svæðum á ströndinni Ísraelsher hefur ekki lagt undir sig. Heimastjórn Palestínumanna vonast einnig til þess að kosningarnar þar muni hjálpa til við að styrkja tilkall heimastjórnarinnar til yfirráða yfir Gasa á ný eftir að Hamas-samtökin steyptu henni af stóli í júní 2007. Undanfarin ár hefur samt heimastjórn Palestínumanna sætt ásökunum um spillingu. Tveggja ára stríð, sem hófst í október 2023 eftir hryðjuverkaárásir Hamas-vígamanna á Ísrael sem kostuðu um 1.200 manns lífið, hefur lagt stór svæði á Gasa í rúst. Á þessum tveimur árum hafa Ísraelsmenn fellt 72 þúsund manns á Gasaströndinni, að sögn heilbrigðisráðuneytis Gasasvæðisins, en þær tölur eru taldar áreiðanlegar af Sameinuðu þjóðunum og öðrum alþjóðastofnunum. Opinberir innviðir eru að hruni komnir, sem og hreinlætisþjónusta og heilbrigðiskerfið á Gasaströndinni. Ramiz Alakbarov, samhæfingarstjóri Sameinuðu þjóðanna í Mið-Austurlöndum, sagði í yfirlýsingu í dag að kosningarnar mörkuðu mikilvægt tækifæri fyrir Palestínumenn til að nýta sinn lýðræðislega rétt. Fareed Taamallah, talsmaður kjörnefndar, sagði að markmiðið væri að tengja Vesturbakkann og Gasa saman sem eina heild. Skoðanakannanir sýna að Palestínumenn eru flestir sammála um að nauðsynlegt sé að sameina svæðin undir eina ríkisstjórn til þess að þau geti síðar verið viðurkennd sem sjálfstætt ríki. Ríkisstjórn Ísraels er almennt andvíg þeirri hugmynd að heimastjórn Palestínumanna snúi aftur til að stjórna Gasasvæðinu, samkvæmt frétt DW, og ísraelska ríkisstjórnin vill alls ekki að Palestína verði sjálfstætt ríki. Ísland viðurkenndi sjálfstæði Palestínu í desember 2011.
Palestína Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira