„Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ Hjörvar Ólafsson skrifar 17. apríl 2026 23:08 Jóhannes Karl Guðjónsson gefur sínum leikmönnum skipanir af bekknum. Vísir/Pawel Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var að mörgu leyti sáttur við spilamennsku sinna manna þrátt fyrir svekkjandi tap liðsins á móti Stjörnunni í annarri umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld. „
Uppleggið gekk ekki nægilega vel upp í fyrri hálfleik en við fórum yfir málin í hálfleik og náðum að loka betur á það sem Stjarnan var að reyna að gera lungann úr seinni hálfleiknum,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH. „Þegar við vorum búnir að loka á spil Stjörnunnar í gegnum miðsvæðið fóru þeir að herja á okkur hægra megin og koma sér í yfirtölu þar. Þaðan dældu þeir inn krossum á Andra Rúnar sem reyndist okkur mjög erfiður. Það er enn meira svekkjandi að Andri hafi náð að skora í ljósi þess að við vorum nýbúnir að bæta við hafsent til þess að freista þess að díla betur við hann. Það var hins vegar ekki nóg,“ sagði Jóhannes Karl þar að auki. „Að mínu mati spiluðum við nógu vel í þessum leik til þess að fá eitt stig út úr honum. Það tókst hins vegar ekki og eitt stig er uppskeran eftir tvo leik. Vissulega hefði ég viljað vera með fleiri stig en spilamennskan í Eyjum verðskuldaði sigur og í kvöld áttum við eitt stig skilið gegn frábæru Stjörnuliði. FH-liðið er á flottum stað en við þurfum að halda áfram að laga það sem upp á vantar til þess að sækja fleiri stig,“ sagði hann um stöðu mála.
Besta deild karla FH Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira