Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. apríl 2026 09:00 Karim Benzema var keyptur af Al Hilal í janúar. Abdullah Ahmed/Getty Images Ríkissjóður Sádi-Arabíu hefur selt fótboltafélagið Al Hilal til prinsins Alwaleed Bin Talal. Al Hilal hefur verið stórtækt á leikmannamarkaðnum en ríkissjóðurinn virðist vera að draga saman seglin.
Ríkissjóðurinn losaði sig við 70 prósenta hlut í félaginu fyrir um 1.4 milljarð ríala, eða um um 45 milljarða íslenskra króna. Bin Talal er meðlimur í konungsfjölskyldu Sádi-Arabíu. Al Hilal var eitt af fjórum félögum í eigu ríkissjóðsins en nú eru þau þrjú eftir: Al Nassr, Al Ahli og Al Ittihad. Al Hilal hafði verið stórtækast af þessum fjórum félögum á leikmannamarkaðnum. Síðan félögin í eigu ríkissjóðsins fóru að láta til sín taka árið 2022 hafa Karim Benzema, Darwin Nunez, Ruben Neves, Kalidou Koulibaly og fleiri verið fengnir til félagsins. Simone Inzaghi þjálfar liðið en það situr sem stendur í öðru sæti deildarinnar á eftir Cristiano Ronaldo og félögum í Al Nassr. Í yfirlýsingu ríkissjóðsins vegna sölunnar segir að markmiðin hafi náðst, félagið Al Hilal sé orðið sjálfbært fjárhagslega, salan fylgi þannig eftir stefnu ríkissjóðsins um að aðstoða við uppbyggingu en nýta síðan fjármuni til uppbyggingar á öðrum sviðum. Ríkissjóður Sádi-Arabíu virðist vera að draga verulega úr fjárfestingum í íþróttum og salan á Al Hilal var staðfest á sama tíma og sögusagnir hafa verið á sveimi um að LIV golfmótaröðin láti niður laupana. Sjá einnig: LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Þá hefur það vakið athygli að í nýjustu fimm ára fjárhagsáætlun ríkissjóðsins eru íþróttir ekki meðal áherslumála.
Sádiarabíski boltinn Sádi-Arabía Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Fleiri fréttir „stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira