Fyrirliðinn sneri aftur og skoraði tvö gegn Rómverjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 20:54 Lautaro Martínez skoraði tvö mörk í endurkomu sinni eftir nokkurra vikna fjarveru vegna meiðsla. getty/Image Photo Agency Lautaro Martínez, fyrirliði Inter, lék í kvöld sinn fyrsta leik frá því um miðjan febrúar. Hann skoraði tvö mörk í 5-2 sigri Inter á Roma á San Siro í ítölsku úrvalsdeildinni.
Martínez meiddist í fyrri leik Inter og Bodø/Glimt í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu 18. febrúar. Hann missti af seinni leiknum gegn Bodø/Glimt og sjö leikjum í heildina. Inter vann aðeins tvo þeirra. Martínez var ekki lengi að stimpla sig inn í leiknum í kvöld því strax á upphafsmínútunni skoraði hann eftir undirbúning Marcus Thuram. Gianluca Mancini jafnaði fyrir Roma á 40. mínútu en í uppbótartíma fyrri hálfleiks kom Hakan Calhanoglu Inter aftur yfir með frábæru langskoti. Martínez skoraði aftur á 52. mínútu en eins og í fyrsta markinu naut hann aðstoðar Thurams. Franski framherjinn skoraði svo sjálfur þremur mínútum seinna. Nicolo Barella kom Inter í 5-1 á 63. mínútu áður en Lorenzo Pellegrini minnkaði muninn í 5-2 sjö mínútum seinna. Með sigrinum náði Inter níu stiga forskoti á toppi deildarinnar. Liðið hefur leikið einum leik meira en AC Milan sem er í 2. sætinu. Roma, sem hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum, er í 6. sætinu.
Ítalski boltinn Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Sjá meira