Ben White úr hetju í skúrk á nokkrum mínútum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2026 21:55 Ben White kom heldur betur við sögu undir lokin á Wembley í kvöld. Getty/Jacques Feeney Arsenal-leikmaðurinn Ben White átti viðburðarríkar lokamínútur á Wembley í kvöld þegar England og Úrúgvæ gerðu 1-1 jafntefli í vináttulandsleik. Spánverjar léku sér að Serbum á sama tíma.
White hafði komið inn á sem varamaður á 69. mínútu og kom enska landsliðinu í 1-0 tólf mínútum síðar. Hann var þá á réttum stað á fjærstönginni eftir hornspyrnu. Dominic Calvert-Lewin, annar varamaður, hafði áður fengið dauðafæri til að koma enska liðinu yfir og átti síðan þátt í markinu með því að framlengja hornið fyrir markið. White breyttist hins vegar úr hetju í skúrk þegar hann fékk dæmt á sig vítaspyrnu í uppbótartíma fyrir að sparka í Federico Vinas sem var að reyna skot. Dómarinn fór í skjáinn og dæmdi víti. Real Madrid-leikmaðurinn Federico Valverde tók vítið og skoraði örugglega. Markið tryggði Úrúgvæmönnum jafntefli. Þetta var fyrsti landsleikur White í fjögur ár. Mikel Oyarzabal, fyrirliði Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad, skoraði tvisvar í fyrri hálfleik í 3-0 sigri Spánverja á Serbíu í vináttulandsleik í kvöld. Oyarzabal skoraði mörkin sín á 16. og 44. mínútu, það fyrra eftir sendingu Fermín López og það seinna eftir sendingu Fermín López. Víctor Munoz skoraði síðan þriðja markið á 72. mínútu eftir sendingu Ferran Torres.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Keegan með fjórða stigs krabbamein United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Ancelotti tekur við liði Hákons í fjarvinnu Freyr rekinn frá Brann Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Milner hættur í fótbolta Gerði óþekktan leikmann heimsfrægan Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Flugu með Herðubreið á HM Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings