Kolbeinn heillaði alla hjá félaginu sem keypti hann strax Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2026 18:32 Kolbeinn Birgir Finnsson er búinn að ganga frá fjögurra ára samningi við Vålerenga. Vålerenga Það tók Kolbein Birgi Finnsson aðeins tvo deildarleiki til að sannfæra norska félagið Vålerenga um að kaupa vinstri bakvörðinn.
Óslóarfélagið tilkynnir það á vefsíðu sinni að það sé búið að kaupa Kolbein frá hollenska félaginu Utrecht. Kolbeinn hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Vålerenga. „Finnsson er okkar“ er fyrirsögnin. Kolbeinn kom til félagsins á láni með kauprétti en heillaði Norðmennina strax. „Þetta er mjög góð tilfinning. Ég fann það strax eftir nokkra daga að þetta væri staður sem ég vildi vera á lengur. Nú er það orðið að veruleika og það gleður mig mjög,“ segir Kolbeinn. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=lO_28XnHM2o">watch on YouTube</a> Íslenski bakkvörðurinn hefur staðið sig vel og spilað allar níutíu mínúturnar í sigrunum á Sandefjord og Rosenborg í upphafi úrvalsdeildarinnar. „Hann hefur staðið sig frábærlega innan vallar sem utan síðan hann kom og er gegnheill fagmaður í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann stendur fyrir það sem við sem félag viljum þegar kemur að menningaruppbyggingu og viljanum til að taka stöðugt ný skref,“ sagði Joacim Jonsson, yfirmaður íþróttamála hjá VIF, um Kolbein. Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur verið hjá mörgum félögum á ferlinum. Áður en hann fór til hollenska liðsins Utrecht spilaði hann með Lyngby í Danmörku. Hann hefur einnig spilað með varaliðum Borussia Dortmund og Brentford auk U21-liðs Groningen. 𝗙𝗶𝗻𝗻𝘀𝘀𝗼𝗻 𝗲𝗿 𝘃å𝗿 | 𝟮𝟬𝟮𝟵 💙https://t.co/UMUTxXpcCd pic.twitter.com/XAxlz3Iaip— Vålerenga Fotball Elite (@ValerengaOslo) March 23, 2026
Norski boltinn Mest lesið Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Íslenski boltinn Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Fótbolti Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Fótbolti Öll spjót beinast að Írum og Heimi Fótbolti Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Handbolti „Stundum ertu með hálfvita sem þjálfara“ Sport Fleiri fréttir Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og boðað til fleiri breytinga Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira