Hálfíslenskur norskur þingmaður hneykslaður á verði á HM-treyjunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2026 17:36 Norska stórstjarnan Erling Braut Haaland á enn eftir að spila í nýju HM-treyjunni. Getty/Joern Pollex Löng biðröð myndaðist þegar sala á nýjum HM-treyjum Noregs hófst á mánudag en á sama tíma fær hátt verð á treyjunum harða gagnrýni frá sumum.
Norðmenn eru að taka þátt í sínu fyrsta heimsmeistaramóti í 28 ár og liðið er uppfullt af stórstjörnum úr Evrópuboltanum. Áhuginn á norska landsliðinu er því í hæstu hæðum. Norsku HM-treyjurnar seldust eins og heitar lummur í stuðningsmannabúðinni við Stórþingið í Ósló í dag. Að sögn Avisa Oslo biðu sumir í klukkutíma í röð til að tryggja sér flíkina sem norsku stjörnurnar munu klæðast á lokamótinu í sumar í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Fréttin með viðtalinu við Mími Kristjánsson.@Nettavisen Ekki eru þó allir hrifnir af verðlaginu á treyjunum. Verðið fyrir einfaldari stuðningsmannaútgáfuna er 1249 norskar krónur. Upprunalegu treyjurnar sem leikmennirnir munu nota á HM kosta 1849 krónur eða meira en 23 þúsund talið í íslenskum krónum. Sá sem vill auk þess fá nafn leikmanns á bakið þarf að borga vel yfir tvö þúsund norskar krónur fyrir dýrustu útgáfuna eða meira en 25 þúsund krónur. Þetta fær fótboltaáhugamanninn og þingsmanninn Kristján Mími Kristjánsson til að sjá rautt. Mímir er hálfíslenskur, á íslenskan föður og norska móður. Hann er fæddur og uppalinn í Stavangri. „Þetta er algjörlega galið. 1849 norskar krónur fyrir treyju er að mínu mati alveg fáránlegt,“ sagði Mímir í samtali við Nettavisen. Hann kaupir ekki þau rök að stuðningsmannaútgáfan sé hagkvæmari kostur. „Þetta er ótrúlega lélegt bragð. Langflestir geta látið sér eftirlíkingu duga, en jafnvel hún er allt of dýr. Niðurstaðan er sú að það skapast stéttaskipting á skólalóðinni milli þeirra sem eiga dýrustu treyjuna og þeirra sem eiga hana ekki. Fyrir einstæða móður er þúsundkall aukalega ekki eitthvað sem maður getur bara hent út hér og þar,“ sagði Kristján Mímir sem er 39 ára gamall og hefur verið þingmaður fyrir Rogaland frá 2021 Norska knattspyrnusambandið bendir á að það sé framleiðandinn Nike sem ákveður verðið á treyjunum. „Allt verður dýrara í dag. Matur í búðinni er dýrari og föt almennt eru dýrari. Þannig verður það líklega líka með fótboltatreyjurnar,“ sagði Jan Ove Nystuen, viðskiptastjóri sambandsins, við Nettavisen.
HM 2026 í fótbolta Noregur Norski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira