Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sindri Sverrisson skrifar 22. mars 2026 09:01 Heimir Hallgrímsson brosmildur á blaðamannafundinum þar sem tilkynnt var um nýja samninginn. Getty/Stephen McCarthy Á meðan að Írar virðast flestir ánægðir með að búið sé að framlengja samninginn við Heimi Hallgrímsson sem þjálfara karlalandsliðsins í fótbolta virðist einum spekingi vera uppsigað við Eyjamanninn, kallar hann „tannlausan“ og telur hann ekki verðskulda meiri tíma.
Heimir kynnti fyrir helgi írska hópinn sem hann vonast til að tryggi sér sæti á HM í fótbolta í sumar – með því að vinna Tékkland á útivelli 26. mars og svo Danmörku eða Norður-Makedóníu á heimavelli í kjölfarið. Um leið var tilkynnt að samningurinn við Heimi hefði verið framlengdur, fram yfir Evrópumótið 2028 þar sem Írar verða í hópi gestgjafa. Forða því að Heimir fái önnur freistandi tilboð Á meðal þeirra sem hafa fagnað þessu er Damien Delaney, fyrrverandi leikmaður Crystal Palace og írska landsliðsins, sem segir það hafa verið skynsamlegt hjá írska knattspyrnusambandinu að tryggja sér strax krafta Heimis til frambúðar. Með því að bíða fram yfir umspilið, og ef Írar kæmust inn á HM, gæti Heimir farið að fá of freistandi tilboð frá ríkari vinnuveitendum. En annar og öllu mikið eldri fyrrverandi landsliðsmaður Íra, Eamon Dunphy, virðist hins vegar áfram hafa allt á hornum sér gagnvart Heimi. Þessi áttræði fyrrverandi sérfræðingur RTÉ hefur ítrekað kallað eftir því að Heimir verði rekinn og virðist alveg sérstaklega upptekinn af því að Heimir sé ekki bara fótboltaþjálfari heldur einnig tannlæknir. Í fyrirsögninni á vef Irish Mirror kallar Dunphy eftir því að Heimir fái frekar nýja tannlæknastofu frekar en nýjan samning.Skjáskot/Irish Mirror Í nýjasta pistli sínum fyrir Irish Mirror segist Dunphy einmitt í fyrirsögn frekar vilja að Heimir fái nýja tannlæknastofu frekar en nýjan samning. Honum þykir alls ekki nóg að Heimir hafi stýrt Írum til sigranna mögnuðu gegn Portúgal og Ungverjalandi í nóvember, sem skiluðu þeim í HM-umspilið á kostnað Ungverja. Dunphy nýtir sér tannlæknamenntun Heimis ítrekað í orðagrín í pistli sínum og gagnrýnir sumar af ákvörðunum þjálfarans sem þó virðast ekki hafa komið niður á írska liðinu. Hann sparar ekki stóru orðin. „Þessi stjóri hefur tekið heimskulegar ákvarðanir áður. Það er engin ástæða til að láta eins og svo sé ekki. Samt sem áður fékk hann nýjan samning. Það er fáránlegt. Algjörlega fáránlegt. Hver tók þessa ákvörðun? Á hvaða grundvelli? Það á ekki að verðlauna menn fyrir að bregðast – ekki í elítuíþróttum,“ skrifaði Dunphy. „Akkúrat núna er hann tannlaus stjóri“ Hann rifjar jafnframt upp að nýir samningar við Giovanni Trapattoni fyrir EM 2012 og við Martin O'Neill fyrir 5-1 tap gegn Dönum 2017 hafi ekki gefist vel. Hann er sannfærður um að best hefði verið að bíða fram yfir umspilið, líkt og Heimir var reiðubúinn að gera, en írska sambandið lagði mikla áherslu á að skrifað yrði undir nýjan samning fyrir umspilið. Dunphy bindur vonir við að Heimir forðist rangar ákvarðanir fyrir leikinn í Prag í næstu viku og segir að þá geti Írar náð góðum úrslitum. „En höfum eitt á hreinu. Það má vel vera að hann sé góður tannlæknir. Akkúrat núna er hann tannlaus stjóri,“ skrifaði Dunphy. Heimir sagði sjálfur í viðtali við RÚV að það hefði vissulega verið gott að finna eftirspurnina eftir því að hann yrði áfram, þó að alltaf hefði staðið til að taka ákvörðun um nýjan samning að HM loknu. Hann væri ánægður með að halda áfram: „Ég er bara ánægður að vera hérna. Auðvitað er búin að vera mikil vinna sem við erum búnir að skila af okkur. Það væri kannski ekkert skynsamlegt að hoppa frá þessu þegar við erum búnir að vinna kannski mestu skítavinnuna,“ sagði Heimir.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands HM 2026 í fótbolta Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira