Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ Aron Guðmundsson skrifar 15. mars 2026 12:03 Frá leik Vals fyrr á tímabilinu gegn KR Vísir/Pawel Sérfræðingar Körfuboltakvölds ræddu dapra frammistöðu Vals gegn Njarðvík í Bónus deild karla. Frammistöðu sem fær fólk til þess að efast um getu liðsins og hvort það hafi burði til þess að sækja í átt að Íslandsmeistaratitli.
Karlalið Vals í körfubolta, lið sem hefur notið mikillar velgengni undanfarin ár hefur oft á tíðum virkað brothætt á yfirstandandi tímabili þrátt fyrir að vera mannað landsliðsmönnum og miklum reynsluboltum í deildinni. Þrjátíu og tveggja stiga tap liðsins og döpur frammistaða var til umræðu í Körfuboltakvöldi. Klippa: Skrýtin ára yfir Val „Það er það sem mér finnst það skrítnasta við þetta. Þó svo að við hefðum dottið niður þá sáum við alltaf einhvern einn leikmann eða tvo sem voru góðir í þeim leikjum en liðið var kannski lélegt,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds og fyrrverandi leikmaður meistaraliðs Keflavíkur þar sem að hann vann fimm Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. „Þarna er bara eins og það sé leiðinlegt að spila,“ sagði Magnús um spilamennsku Vals gegn Njarðvík. „Eins og þeir séu bara komnir með nóg af þessu.“ Hermann Hauksson talaði á svipuðum nótum og Magnús Þór. Valsliðið væri með leikmenn sem eru fremstir í flokki þegar kemur að leikgreind, með leikmenn sem eiga inni einhvern gír þegar líður nær úrslitakeppninni. „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast,“ sagði Hermann um frammistöðu Vals. „Eru þeir miklu meira brothættir heldur en maður hélt þeir væru? Því þegar að maður horfir á liðið hugsar maður með sér að þarna er sé rosalega flottur hópur af leikmönnum.“ Umræðuna um Valsliðið í Körfuboltakvöldi í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Valur Körfuboltakvöld Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Sjá meira