Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Freyja Þórisdóttir skrifar 8. mars 2026 21:27 Mojtaba Khamenei hefur rétt í þessu verið tilkynntur nýr æðstiklerkur Írans. Hann tekur við embættinu af föður sínum. Yfirvöld í Íran/Getty Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar.
Þessu var greint frá í tilkynningu á írönskum ríkismiðlum rétt í þessu. Fregnir höfðu borist af því á undanförnum dögum að Mojtaba myndi taka við af föður sínum en Ísraelar hafa lýst því yfir að þeir muni eltast við hvern sem verður lýstur arftaki Khamenei. Faðir hans hafði verið æðsti valdhafi landsins í rúm þrjátíu og sjö ár þegar hann lést í vistarverum sínum í Teheran á fyrsta degi stríðsins. Mojtaba var ekki á staðnum þegar sprengjurnar féllu en móðir hans, eiginkona og dóttir létust í sprengingunni. Mojtaba hefur áratugalöng tengsl við íranska byltingarvörðinn en hann gegndi herþjónustu í Habib-herdeildinni í stríði Írans og Íraks á níunda áratugnum. Tími hans í byltingarverðinum hjálpaði honum að mynda áhrifamikil tengsl við menn sem nú gegna háttsettum stöðum í landinu. Því telja margir að hann hafi myndað mikilvæg sambönd innan stjórnkerfis byltingarvarðarins. Í mörg ár hefur hann verið lykiltengiliður milli föður síns og forystu varðliðsins. Það veitir honum einstaka stöðu. Hann er náinn öryggiskjarnanum en einnig tengdur borgaralegri og klerkalegri forystu sem treystir á hann. Ólíkt föður sínum, sem var vel þekktur menntamaður, fræðimaður í persneskum kveðskap og áhrifamikill ræðumaður með fylgi innan Írans áður en hann varð æðsti leiðtogi, hefur Mojtaba Khamenei ekki skapað sér slíkan orðstír. Í nýlegri greiningu íranska útlagamiðilsins Iran International segir að leiðtogar íranska byltingarvarðarins hafi þrýst mjög á klerkaráðið svo þeir völdu Mojtaba. Aðrir miðlar erlendis hafa sagt svipaðar fréttir á undanförnum dögum. Samkvæmt írönskum miðlum eru leiðtogar hersins og byltingarvarðarins búnir að lýsa yfir hollustu við Mojtaba. Hann verður sá þriðji til að sitja í embætti æðstaklerks. Fréttin hefur verið uppfærð.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Mest lesið Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Fleiri fréttir Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Sjá meira