Körfubolti

Extraleikarnir: Tommi stóð í al­gjörum stríðs­manni en Nabblinn sá ekki neitt

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Nabblinn og Tommi Steindórs mættu með Stefáni Árna Pálssyni í Mjölni í nýjasta þætti Körfuboltakvölds Extra.
Nabblinn og Tommi Steindórs mættu með Stefáni Árna Pálssyni í Mjölni í nýjasta þætti Körfuboltakvölds Extra. sýn skjáskot

Extraleikarnir héldu áfram í nýjasta þætti Körfuboltakvölds Extra og nú skelltu þeir Tómas Steindórsson og Andri Már Eggertsson sér í bardagabúrið í Mjölni.

Eðli málsins samkvæmt gat hinn 136 kílóa Tómas ekki keppt á móti mun léttari Andra Má, eða Nabblanum eins og hann er kallaður.

Jafnvel þó lífstíllinn á EM í handbolta sitji ennþá þungt í Nabblanum og hann sé vel yfir sinni kjörþyngd, kominn yfir 60 kíló kallinn.

Þeir fengu því andstæðinga við hæfi. Andri keppti við Ketil Axelsson en Tómas keppti við Júlíus Bernsdorf.

„Ef ég ætti að búa til hinn fullkomna stríðsmann, bara í einhverri verksmiðju, þá væri það hann“ sagði Tommi um Júlíus.

Glímugoðsögnin Gunnar Nelson leiðbeindi þeim áfram í þessu og faðir hans, Haraldur Dean Nelson, var mjög ánægður með frammistöðu Tómasar.

Innslagið má sjá í spilaranum að neðan.

Klippa: Extraleikarnir: Nabblinn og Tommi muldir í Mjölni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×