Albert gaf Villa málverk af mótorhjólaferðinni Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. febrúar 2026 14:10 Albert Guðmundsson færði Villa Vill lögfræðingi þetta málverk eftir Sigurð Sævar Magnússon. Aðsend/Vísir/Vilhelm Fótboltamaðurinn Albert Guðmundsson færði Vilhjálmi Hans Vilhjálmssyni, lögfræðingi sínum, málverk eftir listamanninn Sigurð Sævar Magnússon að gjöf. Albert fór í skýrslutöku á lögreglustöðina á Hverfisgötu eftir að hann var kærður fyrir kynferðisbrot 2023 og fékk síðan far hjá Villa aftan á mótorhjóli hans.
Vilhjálmur birti mynd af málverkinu á Instagram-hringrás sinni fyrr í dag og skrifaði við hana: „Grazie Mille Fratm“ sem þýðir á ítölsku: „Þúsund þakkir bróðir minn.“ Þar fyrir neðan stendur, íslenskað úr ítölsku: „Á myndinni: Villi Vill & Albert á lögreglustöðinni, Reykjavík, 29.08.2023.“ „Sigurður Sævar málaði verkið og Albert færði mér það að gjöf. En sagan á bak við verkið er ekki mynd heldur munnleg frásögn Alberts til Sigurðar af þessu atviki þegar við fórum þarna í skýrslutöku hjá lögreglu 29. ágúst 2023,“ sagði Vilhjálmur þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans. Albert Guðmundsson og Villi Vill á leið í dómssal.Vísir/Vilhelm „Hann hafði fengið far á lögreglustöðina og ég kom á mótorhjólinu. Eftir skýrslutökuna fékk hann síðan far aftan á mótorhjólinu á skrifstofuna mína,“ sagði Vilhjálmur og vísaði í ódauðleg orð úr vestranum Harley Davidson and the Marlboro Man: „It's better to be dead and cool, than alive and uncool.“ „Hann upplýsti Sigurð Sævar um þetta í munnlegri geymd sem umbreytti síðan þessari frásögn í þetta málverk,“ sagði Vilhjálmur um mótorhjólatúrinn. Villi Vill keyrir gjarnan um á mótorhjóli.Vísir/Vilhelm Það er ekki oft sem lögfræðingar fá málverk að gjöf frá skjólstæðingum sínum, allavega man Vilhjálmur ekki til þess að hafa fengið slíka gjöf áður. „Þetta var höfðingleg gjöf frá Alberti og ég er gríðarlega ánægður með myndina. Hún er glæsileg og fangar þetta móment mjög vel,“ sagði hann. Albert var kærður fyrir kynferðisbrot í ágúst 2023 en héraðssaksóknari felldi málið niður í febrúar 2024. Ríkissaksóknari fyrirskipaði síðan héraðssaksóknara að ákæra í málinu í maí sama ár. Albert var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í október og var málinu þá áfrýjað áfram til Landsréttar. Albert var sýknaður þar 27. nóvember 2025 en Landsréttur klofnaði í málinu. „Þetta var eina skýrslutakan hjá lögreglu og síðan voru tvær fyrir dómi,“ segir Villi um skýrslutökuna. „Þetta var langt ferli en réttlætið sigraði að lokum,“ sagði Villi.
Myndlist Mál Alberts Guðmundssonar Tengdar fréttir Um hvað voru dómararnir í máli Alberts ósammála? Einn þriggja Landsréttardómara sem dæmdu í máli Alberts Guðmundssonar fótboltamanns taldi rétt að sakfella Albert af ákæru fyrir nauðgun og dæma hann í tveggja og hálfs árs fangelsi. 27. nóvember 2025 18:49 Símon vildi að Albert fengi tvö og hálft ár Landsréttardómarinn Símon Sigvaldason, skilaði sératkvæði í máli Alberts Guðmundssonar og taldi að sakfella hefði átt Albert og dæma í tveggja ára og sex mánaða fangelsi. Hann hefur verið kallaður Símon grimmi vegna hás sakfellingarhlutfalls hans í gegnum tíðina. 27. nóvember 2025 17:23 „Hann er gerður úr stáli, drengurinn“ Vilhjálmur Vilhjálmsson, verjandi Alberts Guðmundssonar, kveðst ánægður með sýknudóm Landsréttar í máli Alberts. Með honum hafi lagalega réttur og vel rökstuddur dómur héraðsdóms verið staðfestur. Ríkissaksóknari hafi bæði verið í lögvillu og staðreyndavillu þegar hann ákvað að ákæra í málinu, þrátt fyrir að héraðssaksóknari hafi ákveðið að fella málið niður. Niðurstaða Landsréttar sé Alberti mikill léttir. 27. nóvember 2025 16:17 Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Sjá meira
Um hvað voru dómararnir í máli Alberts ósammála? Einn þriggja Landsréttardómara sem dæmdu í máli Alberts Guðmundssonar fótboltamanns taldi rétt að sakfella Albert af ákæru fyrir nauðgun og dæma hann í tveggja og hálfs árs fangelsi. 27. nóvember 2025 18:49
Símon vildi að Albert fengi tvö og hálft ár Landsréttardómarinn Símon Sigvaldason, skilaði sératkvæði í máli Alberts Guðmundssonar og taldi að sakfella hefði átt Albert og dæma í tveggja ára og sex mánaða fangelsi. Hann hefur verið kallaður Símon grimmi vegna hás sakfellingarhlutfalls hans í gegnum tíðina. 27. nóvember 2025 17:23
„Hann er gerður úr stáli, drengurinn“ Vilhjálmur Vilhjálmsson, verjandi Alberts Guðmundssonar, kveðst ánægður með sýknudóm Landsréttar í máli Alberts. Með honum hafi lagalega réttur og vel rökstuddur dómur héraðsdóms verið staðfestur. Ríkissaksóknari hafi bæði verið í lögvillu og staðreyndavillu þegar hann ákvað að ákæra í málinu, þrátt fyrir að héraðssaksóknari hafi ákveðið að fella málið niður. Niðurstaða Landsréttar sé Alberti mikill léttir. 27. nóvember 2025 16:17