Vatnaskil hjá Draugum fortíðar: „Dálítið sérstakt að upplifa það að rekast á vegg“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. febrúar 2026 16:41 Flosi Þorgeirsson segir álagið sem fylgdi vikulegum þáttum af Draugum fortíðum hafa reynst honum um of og því þurfi að breyta um takt í útgáfunni. Flosi Þorgeirsson, einn stjórnenda hlaðvarpsins Drauga fortíðar, hefur tilkynnt breytingar á hlaðvarpinu, það muni ekki hverfa heldur koma sjaldnar út. Vikulegri útgáfu þáttanna fylgdi mikið álag sem hafi reynst of mikið fyrir andlega heilsu. Flosi líkir ástandinu við að rekast á vegg og segir andann þurfa hvíld.
Flosi tilkynnti fylgjendum á Facebook-hópnum Draugar fortíðar – Umræðuhópur í gær að breyting yrði á útgáfu hlaðvarpsins, sem Flosi og Baldur Ragnarsson hafa haldið úti frá 2020. „Í upphafi kunni ég auðvitað ekkert á þetta form. Stefnan var að hafa einn þátt í viku. Það var mikil bjartsýni – og enginn sagði mér hversu yfirgripsmikil vinna þetta er í raun,“ skrifaði Flosi í færslunni. Flest stærri hlaðvörp séu með teymi í kringum sig, fólk sem klippi og stytti þættina, aðstoði við heimildaöflun og haldi utan um framleiðsluna. „Hjá Draugum fortíðar er hins vegar meginhlutinn af starfinu, hvað efnisval og úrvinnslu snertir, unnin af mér. Ég hef svo sannarlega fengið stuðning og fólk í kringum mig sem styður mig vel – en vinnan sem skapar þættina frá grunni, frá fyrstu hugmynd til frásagnar, hefur að langmestu verið mín. Það er einfaldlega þannig sem þetta verkefni hefur þróast: það byggir á minni fagþekkingu, mínum vinnustíl og þeim metnaði sem ég legg í efnið,“ skrifaði Flosi í færslunni. Þurfi að breyta um takt vegna andlegu heilsunnar Síðustu ár hefðu verið skemmtilegur og gefandi tími að sögn Flosa en álagið líka verið gríðarlegt. „Þáttur á viku í fimm ár hljómar kannski einfalt á pappír, en í raun er það eins og að klífa fjall í hverri viku. Þegar einn þáttur er loksins tilbúinn er hugurinn þegar farinn í þann næsta. Þetta hefur tekið ótrúlega mikið pláss í kollinum á mér – oft langt áður en nokkur texti er kominn á blað. Heili minn er stórfenglegt verkfæri. Hann hefur þolað margt sem brotið hefur aðra en hann er nú farinn að kvarta yfir álaginu,“ skrifaði Flosi. Þeir félagar hafa haldið úti Draugum fortíðar um sex ára bil. „Nú, þegar ég horfi til baka, sé ég hversu ótrúlegt þetta átak hefur í raun verið. Ég sé líka að ég hef verið of harður við sjálfan mig. Ég hef oft sagt mér að það mætti vera meira, dýpra, betra – en í dag sé ég að ástæða vinsældanna er einmitt þessi faglega nálgun: ástríðan fyrir sögunum, dýptin, vinnan, nákvæmnin og frásögnin. Það sem ég hef lagt í þetta.“ Enginn eigi þó að þurfa að vinnna 150 til 200 prósent til lengdar, sama hversu mikið hann elskar verkefnið. Reglulega þurfi að staldra við og endurmeta. „Þess vegna er þessari fimm ára skorpu nú lokið. Þetta var frábært átak, en nú þarf að breyta um takt. Ekki vegna gremju eða óánægju – heldur vegna þess að ég er að horfast í augu við staðreyndir um hvað er sjálfbært og hvað ekki. Hvernig nákvæmlega framtíðin verður veit ég ekki enn,“ skrifaði hann. „Draugar fortíðar hverfa ekki endilega – en breytinga er þörf. Ég þarf að skapa fyrirkomulag sem er sjálfbærara, bæði andlega og praktískt, svo ég geti áfram gert þetta af þeirri fagmennsku og alúð sem þættirnir byggja á.“ Megi ekki halda að maður sé ofurmenni Yfirlýsingin vakti töluverð viðbrögð á umræðuhópnum Draugum fortíðar og fjölmargir dyggir hlustendur hafa þakkað þeim félögum fyrir sig í ummælum. Þó vakti athygli að Flosi minntist hvergi einu orði á Baldur Ragnarsson sem hefur stýrt þættinum með honum frá upphafi. Blaðamaður heyrði hljóðið í Flosa til að forvitnast út í yfirlýsinguna og aðdragandann að ákvörðunni. „Nei, nei,“ sagði Flosi inntur eftir því hvort eitthvað komið upp á í samstarfinu. „Meira var ég að hugsa með færslunni um mikilvægi þess að passa upp á sjálfan sig. Þótt þú sért að gera góða hluti - og maður má endilega klappa sér á bakið fyrir það - má maður ekki halda að maður sé algjört ofurmenni,“ sagði Flosi. Flosi og Baldur sjá saman um þáttinn. „Mér finnst betra að tala beint við fólk og segja hvernig hlutirnir eru því við erum öll mannleg. Það var það eina sem ég var að hugsa.“ Auk útgáfu þáttanna ferðuðust þeir félagar um landið á síðast ári og héldu lifandi viðburði. Flosi er ánægður með viðtökurnar og segir þær ekki bara tilkomnar vegna þess að hlaðvarpið er skemmtilegt og fróðlegt. „Þetta eru líka tveir menn að tala um hvernig þeim líður, andleg málefni. Það hefur átt stóran þátt í vinsældum þessa hlaðvarps og þar hef ég átt stóran þátt því ég tala opinskátt um þessi mál,“ sagði hann. Heilinn hafi kallað á pásu „Mig langar ekkert að hætta þessu en það er eins og heilinn og andinn hafi sagt: „Nú þurfum við smá pásu.“ Þetta er dálítið misskilin vinna, þessi andlega og tilfinningalega vinna bak við fræðistörf eða að verða sér út um efni og matreiða það ofan í fólk,“ sagði Flosi. „Þetta er eins og að vera kokkur á veitingastað, það er ekkert sama hvernig þú gerir þetta og fólk kvartar ef þú gerir þetta illa. Maður setur smá pressu á sjálfan sig sem maður þarf kannski að fylgjast með.“ Flosi segir breytingarnar nauðsynlegar. Það mun allavega líða lengra milli þátta? „Ég held það verði bara að vera þannig. Það er erfitt að viðurkenna það. Alveg eins og líkaminn gefur sig getur andinn heimtað hvíld. Sá partur af mér hefur ekki fengið hvíld árum saman. Það var dálítið sérstakt að upplifa það að rekast á vegg,“ sagði hann. „Ég vil hafa svona umræðu uppi á borðinu. Ef við værum fleiri, mannkynið í heild, sem myndum segja: „Stundum líður mér ekki vel,“ þá held ég að okkur öllum myndi líða dálítið betur.“
Hlaðvörp Geðheilbrigði Mest lesið Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Tónlist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Gagnrýni Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Lífið Foreldrar sofa meira en margir halda Áskorun Mikil sorg á Alþingi Lífið Aðalsteinn Bergdal er látinn Menning Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Fleiri fréttir Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið