Skorar meira en Cristiano Ronaldo og dreymir um sæti í HM-hópnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 16:46 Ivan Toney fagnar einu af tuttugu mörkum sínum fyrir Al Ahli á leiktíðinni. Getty/Yasser Bakhsh Enski framherjinn Ivan Toney hefur skorað meira en Cristiano Ronaldo í sádíarbísku fótboltadeildinni í vetur og vonast nú eftir endurkomu í enska landsliðið fyrir heimsmeistaramótið í sumar.
Þessi 29 ára gamli framherji Al Ahli hefur skorað tuttugu deildarmörk á þessu tímabili eða tveimur fleiri en Cristiano Ronaldo. Toney lék síðast af sjö landsleikjum sínum fyrir England í vináttuleik gegn Senegal í júní á síðasta ári og fékk silfurverðlaun á EM 2024. Þegar hann var spurður hvað það myndi þýða fyrir hann að vera valinn í hóp Tuchel fyrir mótið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar, sagði Toney við Sky Sports News: „Það væri draumur að spila þar. Alla dreymir um það, og ímyndaðu þér ef við myndum vinna heimsmeistaramótið? Það væri fyrir þjóðina,“ sagði Toney. "It's everyone's dream to represent their country" 🏴Ivan Toney speaks about his World Cup dream and what he could bring to Thomas Tuchel's side 🏆 pic.twitter.com/bkWRS67bi4— Sky Sports Football (@SkyFootball) February 16, 2026 „Maður sér fyrir sér hvað gæti gerst, svona hlutir. Ef það myndi rætast væri það mikil blessun,“ sagði Toney. Toney viðurkenndi að framherji Bayern München, Harry Kane, sem hann lýsti sem „besta markaskorara í fótbolta“, væri enn númer eitt hjá Englandi, en hann ber miklar vonir um að vera varaskeifa fyrir Kane. Hann sagði: „Mitt starf er að halda áfram að skora mörk og vonandi gefur það mér bestu möguleikana á að vera þar,“ sagði Toney. Það vakti athygli þegar Toney, þá 28 ára, fór frá Brentford til Al Ahli sumarið 2024 og hann viðurkenndi að hann gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina einn daginn. „Ég segi aldrei aldrei. Ég hef markmið sem ég vil ná hér fyrst, en í fótbolta, í lífinu, veistu aldrei hvað er handan við hornið. Maður tekur bara einn dag í einu, eitt skref í einu. Vonandi get ég afrekað eitthvað stórt hér fyrst og hver veit hvað næsta skref verður?“ sagði Toney.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Sádiarabíski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Sjá meira