Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. febrúar 2026 07:00 Fabio Capello framlengdi samning sinn skömmu fyrir HM, eins og Thomas Tuchel gerði í gær. getty Englendingar vona að sagan endurtaki sig ekki eftir að landsliðsþjálfarinn Thomas Tuchel skrifaði í gær undir samning við enska knattspyrnusambandið sem gildir fram yfir EM 2028.
Tuchel hefur staðið sig vel í starfinu og stýrði Englandi beint inn á HM 2026 með fullt hús stiga í undankeppninni. Sögusagnir höfðu verið á sveimi um að hann taki við félagsliði eftir HM í sumar. Manchester United og fleiri stórlið verið nefnd í þeirri umræðu en ekkert verður úr því. Committed to our journey 🏴🦁Thomas Tuchel will lead our #ThreeLions through to 2028 after signing a new contract!— England (@England) February 12, 2026 Englendingar taka tíðindunum flestir fagnandi en Phil McNulty, háttsettur fótboltablaðamaður hjá BBC, minnir samlanda sína á að svipuð staða hefur komið upp áður. Árið 2010 var Fabio Capello í sömu sporum, á leiðinni með England á HM en eftirsóttur af félagsliðum. Enska knattspyrnusambandið ákvað að framlengja samning hans fram yfir EM 2012, rétt fyrir HM 2010. Sú saga endaði ekki vel fyrir enska landsliðið eða Capello. England varð fyrir vonbrigðum og féll úr leik í sextán liða úrslitum HM í Suður-Afríku og þá sátu ósáttir stjórnarmenn sambandsins uppi með Capello í starfi. Ítalanum var á endanum vikið úr starfi í febrúar 2012, þegar hann mótmælti þeirri ákvörðun að svipta John Terry fyrirliðabandinu. Gareth Southgate, sem stýrði enska landsliðinu á undan Tuchel, minntist á þetta í ævisögu sem hann gaf nýlega út. Þá sagðist hann hafa ákveðið að þiggja ekki tilboð um framlengdan samning fyrir EM 2024, með það í huga hvernig fór fyrir Capello.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira