Hætti að drekka og flutti til Balí Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 07:01 Ævintýrakonan og pílatesþjálfarinn Silja Geirsdóttir nýtur lífsins á Balí. Aðsend „Fyrir þremur árum ákvað ég að taka heilsuna mína algjörlega í gegn. Ég hætti meðal annars að drekka áfengi og skráði mig í diplómanám í heildrænni næringarfræði,“ segir pílateskennarinn og lífskúnstnerinn Silja Geirsdóttir sem er búsett á hinni geysivinsælu eyju Balí með kærastanum sínum Tómasi Óla Eggertssyni.
Silja er fædd árið 1999 og hún og Tómas, sem er fæddur 1996, lærðu bæði hársnyrtinn og eru mikið ævintýrafólk sem er mjög annt um heilsuna. Þau ákváðu að breyta algjörlega til en Silja ræddi við blaðamann um þessa spennandi flutninga. Silja og Tómas elska lífið úti.Aðsend Hvað varð til þess að þú fluttir til Balí? Mig hefur lengi dreymt um að prófa að búa erlendis en aldrei látið verða af því fyrr en nú. Ég hafði sjálf aldrei komið til Balí áður en heyrt margt jákvætt um eyjuna, meðal annars frá Tómasi kærastanum mínum sem hefur komið hingað þó nokkrum sinnum í gegnum árin. Okkur langaði til þess að breyta til og þegar tækifærið gafst ákváðum við að grípa það. Silja er búin að eignast góðar vinkonur úti.Aðsend Hvað hefurðu verið þar lengi? Við höfum verið hér úti í einn og hálfan mánuð eins og staðan er núna. Tómas og Silja hafa verið úti í einn og hálfan mánuð.Aðsend Hvað ertu að gera þar? Ég var að ljúka pílates kennara námi sem ég hef unnið að undanfarna mánuði, bæði á Íslandi og hér úti á Balí. Núna er fókusinn minn á því og svo sjáum við hvert næstkomandi mánuðir draga okkur. Silja einblínir á heilbrigðan lífsstíl og stundar pílates af krafti.Aðsend Hvenær kynntist þú pílates fyrst? Fyrir þremur árum ákvað ég að taka heilsuna mína algjörlega í gegn. Ég hætti meðal annars að drekka áfengi og skráði mig í diplómanám í heildrænni næringarfræði sem ég kláraði. Á sama tíma byrjaði ég í pílates og hef ekki litið til baka síðan. Ég æfði dans í ellefu ár og fann strax sterka tengingu þar á milli. Í fyrra kviknaði svo löngun til að dýpka þekkinguna enn frekar og þá skráði ég mig í pílateskennarann. View this post on Instagram A post shared by Silja (@siljageirs) Hvernig var þín upplifun af því að læra pílateskennarann úti? Þetta var upplifun sem ég mun aldrei gleyma. Eftir nokkra mánuði af sjálfsæfingum, bóklegum prófum og því að fylgjast með öðrum kenna tók við átta daga intensív kennsla. Ég er fyrsti Íslendingurinn sem klárar þetta nám hjá þeim. Það var án efa krefjandi og ég fór oft út fyrir þægindarammann minn, en ég kynntist jafnframt ótrúlega yndislegum hópi kvenna alls staðar að úr heiminum sem ég mun klárlega halda sambandi við. Pílateslífið á vel við Silju.Aðsend Hefurðu búið annars staðar erlendis? Nei, þetta er í fyrsta skiptið sem ég flyt erlendis. Ég ákvað að taka það alla leið og ferðast í þrjátíu tíma á stað sem ég hafði aldrei heimsótt. Silja hafði aldrei áður búið erlendis þegar hún ferðaðist í þrjátíu tíma til að flytja til Balí.Aðsend Hvernig hefur daglegt líf verið hjá þér þarna? Dagarnir eru frekar svipaðir hjá okkur. Við elskum rútínu og reynum að halda okkur við hana, vöknum snemma, förum í pílates eða ræktina og leggjum áherslu á hreint og næringarríkt mataræði. Við förum flest alla daga á sömu kaffihúsin og veitingastaðina í hverfinu en reynum að vera dugleg að fara úti búð og elda heima þrátt fyrir að það sé ekki mikil menning fyrir því hér. Silja og Tómas voru í draumaferð í Uluwatu. Aðsend Inn á milli skellum við okkur í stuttar ferðir á vespunni til þess að skoða eyjuna betur. Við erum til dæmis ný komin úr tveggja daga ferð frá Uluwatu. Hvað er skemmtilegast við lífið úti? Einfaldleikinn! Að vakna á hverjum morgni og vita að veðrið er gott. Það hefur ótrúlega jákvæð áhrif á daglegt líf og auðvitað að sjá og upplifa alla þessa mögnuðu staði sem Balí hefur upp á að bjóða. Ég lærði líka að keyra vespu! Silja keyrir um eyjuna á vespu.Aðsend Ég hafði aldrei sest á mótorhjól áður og datt ekki í hug að ég myndi nokkurn tímann gera það. En það er eitthvað við að sitja á vespunni, finna vindinn í hárinu og hitann frá sólinni. Þetta er ákveðin frelsistilfinning sem erfitt er að lýsa en þegar þú hefur upplifað hana þá veistu hvað ég er að tala um. Hefurðu fundið fyrir heimþrá ? Ég myndi ekki segja að ég sé komin með heimþrá, en það hafa vissulega komið upp augnablik þar sem ég finn fyrir fjarlægðinni. Þá sérstaklega vegna tímamismunarins og það að vera þrjátíu klukkustundum í burtu frá fjölskyldu og bestu vinkonum mínum sem ég er mjög náin. View this post on Instagram A post shared by Silja (@siljageirs) Hvað er framundan? Næst á dagskrá er ferð til Japans í mars þar sem við ætlum að hitta vini. Ég er virkilega spennt fyrir að kíkja til Uji sem er í dag þekkt sem matcha-höfuðborg heimsins til að læra meira um sögu matcha, framleiðsluferlið og hvernig á að útbúa hinn fullkomna bolla. Silja er mikil matcha pæja.Aðsend Það er eitthvað við góðan bolla af matcha sem gerir daginn aðeins betri. En uppáhalds kaffihúsið mitt hér úti er einmitt frá Japan. Svo er líka skemmtilegt að segja frá því að ég og yndislega vinkona mín Andrea, sem einnig er pilates kennari, erum að skipuleggja spennandi verkefni sem fer af stað í haust. Við munum deila nánari upplýsingum frá því síðar! Pilates pæjurnar Andrea og Silja eru að plana eitthvað skemmtilegt.Aðsend Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti? Hversu einfalt lífið getur verið og hvað maður þarf í raun lítið til að upplifa hamingju. Það er ekkert sem skiptir svona miklu máli svo það er eins gott að lifa lífinu fyrir sig og gera það sem mann dreymir um. View this post on Instagram A post shared by Silja (@siljageirs) Hvað er það steiktasta eða fyndnasta sem þú hefur lent í úti? Þar sem við komum hingað á regntímanum höfum við oftar en einu sinni lent í því að vera komin fín á vespuna, á leið út að borða í sól og blíðu. Svo allt í einu opnast himnarnir og það er eins og hellt sé úr fötu yfir okkur. En það er sjarmi út af fyrir sig. @siljageirs DIML - Bali 🌞 Market, Date night and walk through our favorite neighborhood ♬ Real Love Baby - Father John Misty Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Klárlega fólkið. Hvort sem það eru heimamennirnir, stelpurnar sem ég kynntist í náminu eða manneskjan við næsta borð á kaffihúsinu. Fólkið hér er einstaklega hlýtt og opið. Ég hef sjaldan upplifað jafn hjálpsamt og vingjarnlegt samfélag. Hvert sem þú ferð brosir fólk til þín sem er alls ekki sjálfsagður hlutur en gerir daginn manns betri. Ég get ekki alveg útskýrt það, en það er eitthvað við Balí. Ákveðin ró og orka. Núna skil ég af hverju fólk sækist í að vera hér.
Íslendingar erlendis Indónesía Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Sjá meira