Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 1. febrúar 2026 10:31 Hinrik er nú staddur í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti. Aðsend Listamenn úr Myndlistarfélag Árnessýslu (MFÁ) standa saman að styrktarviðburði til stuðnings Hinriki Sjørup, 10 ára dreng frá Selfossi, sem glímir við blóðkrabbamein. Hinrik er nú staddur í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti. Söfnunin fer fram í dag, 1. febrúar.
Með viðburðinum viljum við sýna samstöðu, hlýju og raunverulegan stuðning við fjölskylduna á þessum krefjandi tíma. Rúmlega 30 félagsmenn MFÁ hafa gefið yfir 120 listaverk til sölu og rennur allur ágóði óskertur til fjölskyldunnar. Hvert verk er merkt með lágmarksverði, en frjáls framlög umfram það eru hjartanlega vel þegin. Viðburðurinn fer fram sunnudaginn 1. febrúar kl. 12:00–17:00 á vinnustofu MFÁ í Sandvíkursetrinu á Selfossi, sem er við hliðina á Sundhöll Selfoss. Viðburðurinn fer fram í Sandvíkursetri á Selfossi í dag á milli 12:00 og 17:00. Magnús Hlynur Hreiðarsson Söngvarinn Grétar Matt mætir og spilar ljúfa tóna fyrir gesti og gangandi. Mjólkursamsalan býður upp á kókómjólk og mjólk með kaffinu, og HP kökugerð gleður gesti með kanilsnúðum. Listakonurnar Mæja frá EM Heimagallery og Katrín Helgadóttir hafa gefið verk til sölu, og bekkjarsystkini Hinriks, 5. bekk Vallaskóla hafa einnig skapað listaverk sem verða á staðnum til sölu. Allur ágóði rennur beint til Hinriks Sjørup og fjölskyldu hans. Móðir Hinriks leggur sitt af mörkum með hekluðum kanínum og snudduböndum, og Hinrik sjálfur ásamt systkinum sínum, Lenu Sif og Elímari Sjørup, sendu eigin listaverk alla leið frá Svíþjóð til að taka þátt. Sýningin hefur veitt Hinriki mikinn kraft og gleði á erfiðum tíma. Hér er styrktarreikningurinn, sem er hægt að leggja beint inn á. Reikningur númer: 0325 - 26 - 9092. Kennitala: 160692-2789 Einnig er hægt að kaupa verkin á netinu á þessari slóð
Árborg Sýningar á Íslandi Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira