Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2026 23:02 Gianni Infantino var að reyna að gera lítið úr áhyggjunum af HM í Bandaríkjunum í sumar en ákvað að gera það með því að skjóta á breska stuðningsmenn. Getty/Ulrik Pedersen Svokallaður brandari Gianni Infantino, forseta FIFA, um hegðun breskra stuðningsmanna á heimsmeistaramótinu í Katar 2022 var „hvorki hjálplegur né réttur,“ segir yfirmaður fótboltalöggæslu í Bretlandi sem gegnrýnir skot forsetans.
Infantino skaut á breska stuðningsmenn í ræðu á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss og sagði að úrslitakeppnin í Katar 2022 hefði verið sérstök vegna þess að „enginn Breti var handtekinn.“ Mark Roberts lögreglustjóri, yfirmaður fótboltalöggæslu hjá Landssambandi lögreglustjóra, sagði við Press Association: „Þótt slíkt kunni að vera sagt í gríni er hvorki hjálplegt né rétt að koma með slíkar athugasemdir,“ sagði Roberts. Normið að Bretar hagi sér vel „Til að það sé á hreinu, þá er það normið að „breskir“ stuðningsmenn hagi sér vel á heimsmeistaramótum, ekki eitthvað sérstakt,“ sagði Roberts. „Í Katar voru engir enskir eða velskir stuðningsmenn handteknir, í Rússlandi voru þrír enskir stuðningsmenn handteknir fyrir mjög smávægileg brot. Í Brasilíu voru fimmtán handteknir – þar af sjö fyrir miðasölu – og í Suður-Afríku voru sjö handteknir fyrir smávægileg mál,“ sagði Roberts. „Ódýrt grín“ Infantino hjá FIFA var strax sakaður á samfélagsmiðlum um að gera „ódýrt grín“ að breskum stuðningsmönnum „Miðað við þann mikla fjölda stuðningsmanna sem ferðast og borga mikið til að komast á heimsmeistaramót eru mörg, mörg önnur lönd sem valda gestgjöfum meiri vandræðum,“ sagði Roberts. Infantino ræddi um heimsmeistaramótið í Katar þegar hann reyndi að sefa áhyggjur vegna úrslitakeppninnar í Norður-Ameríku í sumar, sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem mikil spenna er innanlands. „Þetta er eitthvað mjög, mjög sérstakt“ Hann sagði að úrslitakeppnin í Katar hefði fengið „mikla gagnrýni“ en bætti við: „Þegar boltinn fór að rúlla og töfrarnir hófust urðu nánast engin atvik,“ sagði Infantino. „Í fyrsta sinn í sögunni var heldur enginn Breti handtekinn á heimsmeistaramóti. Ímyndið ykkur! Þetta er eitthvað mjög, mjög sérstakt,“ sagði Infantino. Samtök fótboltaáhugamanna sögðu á fimmtudag að Infantino ætti að einbeita sér að því að bjóða upp á ódýra miða frekar en að gera ódýrt grín á kostnað stuðningsmanna.
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn FIFA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira