Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. janúar 2026 17:24 Ali Khameini, æðsti leiðtogi Írans. Klerkastjórnin í Íran vinnur í því að rjúfa tengingu borgara sinna við veraldarvefinn endanlega, að sögn samtaka sem fylgjast með vefritskoðun íranskra stjórnvalda. Verið sé að koma upp sérírönsku interneti án tengingar við umheiminn.
Filterwatch, samtök sem berjast fyrir frjálsum aðgangi Írana að veraldarvefnum, segja klerkana hafa lengi haft í hyggju að herða tökin enn þá meira á internetaðgangi Írana. Samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna er stefnt að því að aðgangur að hinu alþjóðlega neti verði bundinn sérstöku leyfi stjórnarinnar. „Ríkisfjölmiðlar og talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa ýjað að því að þetta sé komið til að vera og vara við því að óheftur aðgangur að internetinu verði ekki í boði eftir 2026,“ segir í skýrslu samtakanna. Samkvæmt umfjöllun þeirra felur þessi áætlun klerkastjórnarinnar í sér að aðeins þeir Íranir sem gengist hefðu undir bakgrunnsathugun og hlotið vottun stjórnvalda fengju aðgang að ritskoðuðum veraldarvefnum. Aðrir Íranir gætu aðeins tengst þjóðneti Írans, eins konar hliðarvef sem er ekki tengdur umheiminum. Lokað hefur verið á internetið í Íran frá áttunda janúar síðastliðnum. Fjölmenn og blóðug mótmæli gegn stjórnvöldum hafa staðið yfir síðan í lok ársins sem leið og mörg þúsund manns liggja í valnum. Íranski herinn og byltingarvörðurinn hafa bæði verið staðnir að því að hefja skothríð á mótmælendafylkingar og sömuleiðis að fyrirskipa aftökur á mörg hundruð mótmælendum. Samkvæmt umfjöllun Guardian hefur þróun staðið yfir á sérstöku þjóðneti frá árinu 2009 í kjölfar þess að stjórnvöld lokuðu á netaðgang vegna annarrar fjölmennrar mótmælabylgju. Það hafi falið í sér gífurlegan kostnað og sömuleiðis erfiðað stjórnvöldum að stýra landinu.
Íran Mótmælaalda í Íran Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira