Yfirvöld sögð rukka háar fjárhæðir fyrir afhendingu líka mótmælenda Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. janúar 2026 08:20 Mótmælin hafa staðið yfir frá því fyrir áramót og um 2.400 látist. Getty/Dan Kitwood Yfirvöld í Íran eru sögð hafa heimtað háar fjárhæðir af fjölskyldum einstaklinga sem látist hafa í mótmælum í landinu fyrir afhendingu líkamsleifa þeirra.
BBC hefur eftir fjölda heimildarmanna að öryggisyfirvöld neiti að afhenda fjölskyldum lík sem hvíla í líkhúsum og á sjúkrahúsum, nema gegn greiðslu. Ein fjölskylda í borginni Rasht segir að þeim hafi verið tjáð að þau fengju ekki lík ástvinar nema gegn greiðslu rúmra 600 þúsund króna. Önnur fjölskylda í Tehran var rukkuð um nærri 900 þúsund krónur. Þess má geta að samkvæmt BBC nema mánaðarlaun verkamanns í Íran um það bil 13 þúsund krónum. Starfsfólk sjúkrahúsa er sagt hafa reynt að setja sig í samband við fjölskyldur látnu til að vara þær við og hvetja þær til að sækja líkamsleifar áður en öryggisyfirvöld láta sig málið varða. Ættingi konu í Íran, sem sjálfur er búsettur í Lundúnum, sagði konuna aðeins hafa frétt af dauða eiginmanns síns þegar starfsfólk sjúkrahúss hafði samband við hana og ráðlagði henni að koma að sækja líkið áður en öryggissveitir kæmu og rukkuðu hana fyrir. Konan er sögð hafa tekið börnin sín tvö með sér á spítalann, þar sem líki eiginmanns hennar var komið fyrir á pallinum aftan á bifreið. Líkinu var síðan ekið heim, í sjö klukkustundir, þar sem konan grét yfir manni sínum aftan á pallinum á meðan börnin sátu í framsætinu. BBC segist einnig hafa heimildir fyrir því að nokkrar fjölskyldur hafi brotist inn í líkhús til að ná í líkamsleifar ástvina. Erlendir miðlar fá ekki að flytja fregnir frá Íran og þá hafa stjórnvöld takmarkað verulega alla möguleika á samskiptum, hvort sem um er að ræða um síma eða internetið. Þannig hefur reynst erfitt að fá skýra mynd af stöðu mála í landinu.
Íran Mótmælaalda í Íran Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira