Fyrsta íslenska félagið í tuttugu ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2026 14:51 Dedrick Basile skoraði 27 stig í endurkomusigri Stólanna í gær. Basile og félagar eru komnir áfram í úrslitakeppni Norður-Evrópukeppni félagsliða. Vísir/Diego Tindastóll tryggði í gærkvöldi sér sæti í úrslitakeppninni í Norður-Evrópudeild karla í körfubolta með endurkomusigri á móti Sigal Pristhina frá Kósóvó.
Úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu en eftir þennan sigur er ljóst að Stólarnir eru aðeins þriðja liðið í keppninni til að gulltryggja sig inn í útsláttarkeppnina. Samfélagsmiðlar ENBL-deildarinnar óskuðu íslenska félaginu til hamingju með tímamótin sem eru í höfn þegar enn eru tvær umferðir eftir. Tindastóll hefur unnið fimm af sex leikjum sínum í keppninni og er í öðru sæti á eftir CSO Voluntari frá Rúmeníu. Rúmenska liðið hefur líka unnið fimm leiki en er með betri stigatölu og liðin hafa ekki mæst. Eina tap Stólanna var á móti BK Opava frá Tékklandi. Með þessum sigri í gærkvöldi urðu Stólarnir fyrsta íslenska félagið í tuttugu ár til að komast áfram í sextán liða úrslit Evrópukeppni félagsliða eða síðan Keflvíkingar voru að gera góða hluti í FIBA EuroCup Challenge, tímabilið 2005-2006. Næsti leikur Tindastólsliðsins er við Dinamo Zagreb frá Króatíu á Króknum þann 20. janúar næstkomandi en lokaleikurinn í riðlakeppninni er síðan við belgíska félagið Brussels Basketball 10. febrúar en fer líka fram í Síkinu. View this post on Instagram A post shared by ENBL (@enbleague)
Tindastóll Körfubolti Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Fleiri fréttir Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Sjá meira