Fögnuðu fallegri og óvæntri vináttu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 20. október 2025 14:02 Saga Margrét, Tinna Marín, Marín, Andri og hundurinn Hera fögnuðu bókaútgáfu Marínar. Sunna Ben „Ég er frekar upptekin af því að tala ekki bara um hlutina heldur framkvæma þá,“ segir Marín Magnúsdóttir sem var að senda frá sér sína fyrstu bók, Hera og Gullbrá.
Sagan byggir á sönnum atburðum. „Hugmyndin kviknaði eftir óvænt ævintýri okkar fjölskyldunnar í Húsafelli fyrir nokkrum árum. Saga Margrét dóttir okkar var hrædd við hunda þegar hún var yngri og Hera hundurinn okkar hjálpaði henni mikið að komast yfir hræðsluna á sínum tíma,“ segir Marín um bókina. „Í sumarbústaðarferð okkar fjölskyldunnar fundum við sem sagt pínulítinn gæsarunga sem neitaði að víkja frá okkur og við gáfum henni nafnið Gullbrá. Hera hundurinn okkar tók Gullbrá undir sinn verndarvæng og til varð sönn og hugljúf saga sem segir frá óvæntri og fallegri vináttu.“ Marín er gift Andra Þór Guðmundssyni og saman eiga þau fimm börn og tvo labradorhunda, Heru og Heklu. Hera er í dag sömuleiðis heimsóknarhundur Rauða krossins. „Hún fer ásamt mér að heimsækja hópa eða einstaklinga en markmið Hundavina er að rjúfa félagslega einangrun og létta einstaklingum lífið,“ segir Marín og brosir. Marín er alltaf með marga bolta á lofti og sat ekki lengi á hugmyndinni að skrifa bók. Hún er viðskiptafræðingur að mennt með sérhæfingu í mannauðsstjórnun og markaðs- og almannatengslum, situr í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og er stjórnarformaður Exedra auk þess sem hún teku virkan þátt í nýsköpunarverkefnum og ýmsum góðgerðarverkefnum, á borð við Riddarar kærleikans. Marín glæsileg í útgáfuteitinu.Sunna Ben „Ég er frekar upptekin af því að tala ekki bara um hlutina heldur framkvæma þá, þannig ég ákvað að henda mér í bókaskrifin eftir að ég sagði við stelpurnar mínar að þær væri gaman að gera fallega sögu úr þessu.“ Marín segir það góða tilfinningu að vera búin að gefa bókina út. „Mér er búið að finnast þetta ferli allt saman mjög skemmtilegt, einnig þykir mér svo vænt um að hafa fengið nána frænku mína Sunnevu Guðrúnu til að myndskreyta bókina. Hún er algjör snillingur og gerir þetta virkilega vel. Aftast í bókinni er svo QR kóði með stuttu myndbandi af ævintýrinu. Það er gaman að horfa á það með börnunum eftir að vera búin að lesa, þá verður þetta svo raunverulegt.“ Marín fagnaði útgáfunni hjá Sölku með flottu teiti en hér má sjá nokkrar vel valdar myndir af því: Marín knúsar Sunnevu Guðrúnu myndskreyti.Sunna Ben Sigurlaug Guðrún glæsileg.Sunna Ben Anna Lea og Dögg eigendur bókaútgáfunnar Sölku ásamt Marín og Heru hundinum.Sunna Ben Margt um manninn.Sunna Ben Ragnhildur Auður og Ragnhildur tengdamóðir Marínar.Sunna Ben Glæsilegar.Sunna Ben Gestir í góðum gír.Sunna Ben Hera og Gullbrá sló í gegn.Sunna Ben Elín María Björnsdóttir stofnandi og eigandi Valhalla.Sunna Ben Gestir á öllum aldri skemmtu sér vel.Sunna Ben Marín áritar bók.Sunna Ben Gestir í gír!Sunna Ben Gleðin við völd.Sunna Ben Marín bíður gesti velkomna.Sunna Ben
Samkvæmislífið Bókaútgáfa Mest lesið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Dorrit á trampólíni Lífið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Bíó og sjónvarp Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið 24 Jump Street á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Sjá meira