Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. september 2025 14:30 Frammistaða Tryggva Snæs Hlinasonar á EM í körfubolta vakti mikla athygli. vísir/hulda margrét Miðherji íslenska körfuboltalandsliðsins, Tryggvi Snær Hlinason, spilaði frábærlega á nýafstöðnu Evrópumóti. Hann var ofarlega á mörgum tölfræðilistum mótsins.
Tryggvi var besti leikmaður íslenska liðsins á EM sem lauk um helgina. Íslendingar töpuðu öllum fimm leikjunum sínum á mótinu en stjarna Tryggva skein skært. Í leikjunum fimm varði Tryggvi að meðaltali 2,4 skot, flest allra á EM. Næstur kom Georgíumaðurinn Goga Bitadze með 1,8 varin skot að meðaltali í leik. Tryggvi var einn fjögurra leikmanna á EM sem voru með fjórar tvennur; það er með tíu eða meira í tveimur tölfræðiþáttum. Tryggvi var með að minnsta kosti tíu stig og að minnsta kosti tíu fráköst í fyrstu fjórum leikjum Íslands á EM. Hinir leikmennirnir sem náðu fjórum tvennum spila allir í NBA og eru þekktar stærðir: Nikola Vucevic, Alperen Sengün og Giannis Antetokounmpo. Tryggvi var með bestu skotnýtinguna inni í teig á EM ásamt serbnesku ofurstjörnunni Nikola Jokic. Þeir hittu báðir úr 75 prósent skota sinna innan teigs. Aðeins Svartfellingurinn Vucevic tók fleiri fráköst að meðaltali í leik á EM en Tryggvi, eða 11,6 fráköst. Tryggvi tók 10,6 fráköst að meðaltali í leik. Þá var Tryggvi í 6. sæti á listanum yfir þá leikmenn sem voru með flest framlagsstig að meðaltali í leik. Hinir eru allir NBA-stjörnur; Luka Doncic, Giannis, Jokic, Sengün og Vucevic.
EM 2025 í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira