Lífið

Hlustendaverðlaunin 2025: Ekki hægt að vera ekki í stuði á trylltum tón­leikum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
GDRN skein skært á Hlustendaverðlaununum í gærkvöldi.
GDRN skein skært á Hlustendaverðlaununum í gærkvöldi. Hulda Margrét

Hlustendaverðlaunin 2025 voru afhent við hátíðlega athöfn á Nasa við Austurvöll í gærkvöldi. Kynnar kvöldsins voru útvarpsmennirnir Egill Ploder Ottósson og Ríkharð G. Óskarsson.

Það er óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til á þessari uppskeruhátíð íslenskrar tónlistar fór fram í tólfta skiptið. Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa í sameiningu að verðlaununum.

Mikið var um dýrðir og margir af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar stigu á svið. Verðlaunahátíðina má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan. 

Markmiðið er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári. Lesendur Vísis gátu svo kosið á milli tilnefndra.

Herra Hnetusmjör, Jóhanna Guðrún, GDRN, Bríet, Friðrik Dór, Kristmundur Axel, Club Dub og Steindi Jr. voru á meðal þeirra sem komu fram.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þessu vel heppnaða kvöldi.

Rikki G. og Egill Ploder voru kynnar kvöldsins.Hulda Margrét
Jóhanna Guðrún kom áhorfendum á Nasa og heima í stofu í réttan gír í upphafi kvölds.Hulda Margrét
Herra Hnetusmjjör sópaði að sér verðlaunum.Hulda Margrét
Jóhanna Helga og Ólafur Jóhann veittu verðlaun.Hulda Margrét
Friðrik Dór, Steindi Jr, Ásgeir Orri og Herra Hnetusmjör tóku slagarana: Til í allt I, II og III.Hulda Margrét
Bragi Guðmunds og Guðjón Smári.Hulda Margrét
Hulda Margrét
Bríet tók glænýtt lag, Blood on my lips. Hún lét sér ekki nægja að vera uppi á sviði. Hulda Margrét
Páll Sævar og Þórdís.Hulda Margrét
GDRN skein skært!Hulda Margrét
Ásgeir Orri var valinn pródúsent ársins.Hulda Margrét
Útvarpskonurnar Jóna Margrét og Ása Ninna voru í blússandi gír.Hulda Margrét
Hulda Margrét
Birnir og Aron Kristinn tóku eitt af sínu nýjustu lögum.Hulda Margrét
Hulda Margrét
Birnir heiðraði gesti Hlustendaverðlaunanna með því að frumflytja lagið LXS.Hulda Margrét
Strákasveitin IceGuys hlaut verðlaun fyrir myndband ársins við lagið Gemmér Gemmér.Hulda Margrét
Strákarnir í ClubDub tóku nokkur af lögunum sem hafa slegið í gegn að undanförnu, með Bríet sér til halds og trausts í einu þeirra.Hulda Margrét
Kristmundur Axel tók lagið sem skaut honum upp á stjörnuhimininn á sínum tíma í bland við nýja hittara.Hulda Margrét
Líklega státa fáir íslenskir tónlistarmenn af öðrum eins sjarma uppi á sviði eins og Gugusar.Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Nostalgían sveif yfir vötnum þegar félagarnir Egill, Aron og Arnar rifjuðu upp gamla takta.Hulda Margrét
Viktor, Agnes, Helga, Rikki, Egill, Þórunn og Þórdís, starfsmenn Sýnar.Hulda Margrét





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.