Lífið

Tap­sár Måns svarar gagn­rýn­endum fullum hálsi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Måns Zelmerlöw hefur ekki átt sjö dagana sæla.
Måns Zelmerlöw hefur ekki átt sjö dagana sæla. EPA/ALBERTO MARTIN

Måns Zelmerlöw var ekki sáttur eftir að hafa þurft að sætta sig við annað sætið í Melodifestivalen, undankeppni Svíþjóðar fyrir Eurovision um helgina þar sem gríngrúppan Kaj kom, sá og sigraði. Söngvarinn var harðorður eftir tapið og bætti svo um betur í dag og lét gagnrýnendur sína heyra það í færslu á samfélagsmiðlum.

Sænsk-finnska gríngrúppan sigraði keppnina með sjö stigum meira en Måns, sem sigraði Eurovision á sínum tíma með laginu Heroes. Måns hafði fyrir fram verið talinn líklegastur til að sigra keppnina með lag sitt Revolution en grínistarnir í Kaj skutu honum ref fyrir rass, rétt svo. Måns sýndi strax tilfinningar eftir úrslitin en Aftonbladet segir hann hafa hlaupið grátandi út úr græna herberginu eftir að úrslit voru tilkynnt.

Lét dómnefndina heyra það

„Ég er einstaklega vonsvikinn. Ég hafði það á tilfinningunni að þetta myndi gerast í allan dag. Ég gerði allt sem ég gat en ég get ekki keppt við grínatriði. Það sem ég geri er ekki nærri því líkt því sem þeir gera,“ sagði sársvekktur Måns við sænska ríkisútvarpið í sjónvarpsviðtali um helgina.

Hann ræddi svo við Aftonbladet síðar um kvöldið og hafði enn ekki jafnað sig. „Ég er alls ekki ánægður. Ég er ekki viss um að ég muni gera þetta aftur,“ sagði leikarinn. Hann bætti því við að hann hefði verið hissa að sjá hve mörg stig alþjóðlegar dómnefndir hefðu gefið Kaj.

Rétt eins og í Söngvakeppninni, gefa dómnefndir í Melodifestivalen frá hinum ýmsu löndum stig. Kaj fékk einungis tveimur stigum minna en Måns frá dómnefndum og sópaði svo inn stigunum í símaatkvæðagreiðslu.

„Ég var í áfalli að sjá að dómnefndirnar gáfu Kaj svona háa einkunn. Ég hljóma eins og ég sé tapsár, en við munum komast að því í maí hvort alþjóðlegu dómnefndirnar völdu rétt.“

Stílaði svar til „þröngsýnna“ hatara

Måns virðist í kjölfarið hafa fengið yfir sig holskeflu af gagnrýni fyrir viðbrögð sín við tapi sínu. Hann birti í morgun færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hann tjáði sig um þá gagnrýni og stílaði hana á „þröngsýna hatara“ sína.

„Sú staðreynd að ég er svekktur yfir úrslitunum er BARA heilbrigt, er það ekki? Hafið þið einhvern tímann horft upp á íþróttamann lenda í öðru sæti og lýsa því svo yfir að hann sé mjög ánægður? Þetta hlýtur að vera í lagi, er það ekki? Þetta er keppni!“

Måns bætir því við að hann samgleðjist gríngrúppunni Kaj. Hann sé hinsvegar hvumsa yfir óheftri reiði og ofsafengnum viðbrögðum í sænska athugasemdakerfinu hjá fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.

„Að halda að það sé í lagi að ausa hatri yfir einhvern í athugasemdum af því að viðkomandi vill sigra keppni sem við öll elskum og vegna þess að ég vil ekkert meira en að vera fulltrúi Svíþjóðar aftur í Eurovision? HVERNIG getur það verið rangt? Er það ekki ástæða þess að við erum hérna? Hvernig þýðir það að ég sé asni? Að ég hafi grátið eftir að pressunni var létt af mér og ekki bara þeirri sem ég upplifði í keppninni, það hlýtur að vera í lagi og það þýðir ekki að ég sé tapsár, er það?“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.