Körfubolti

KR sótti Gigliotti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jason Gigliotti í leik með Grindavík sem KR mætir einmitt á morgun.
Jason Gigliotti í leik með Grindavík sem KR mætir einmitt á morgun. vísir/jón gautur

Körfuboltamaðurinn Jason Gigliotti er genginn í raðir KR og mun klára tímabilið með liðinu.

Gigliotti, sem er Bandaríkjamaður með ungverskt vegabréf, var látinn fara frá Grindavík fyrr í mánuðinum. Hann var ekki lengi án félags því KR hefur samið við hann.

Gigliotti spilaði stórvel með Þór Ak. í 1. deildinni á síðasta tímabili og samdi í kjölfarið við Grindavík. Í níu leikjum fyrir þá gulu í Bónus deildinni skoraði hann 10,6 stig og tók 6,1 frákast að meðaltali.

KR missti Dani Koljanin yfir í ÍR á dögunum en ætla má að Gigliotti eigi að fylla hans skarð.

„Ég er mjög ánægður að fá Jason inn í hópinn okkar. Hann kemur með hæð og styrk sem mun hjálpa okkur í baráttunni sem framundan er,“ segir Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, í tilkynningu frá félaginu.

KR mætir einmitt Grindavík annað kvöld, í síðasta leik sínum á árinu 2024. KR-ingar eru í 7. sæti Bónus deildarinnar með tíu stig eftir tíu leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×