Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. desember 2024 20:03 Lilja Alfreðs afhenti Magga Eiríks þakkarorðu. Mummi Lú Þakkarorða íslenskrar tónlistar var afhent þann 1. desember á Degi íslenskrar tónlistar á sérstökum hátíðartónleikum til heiðurs tónlistarmanninum Magnúsi Eiríkssyni. Tónleikarnir fóru fram fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu og var þjóðinni boðið að sækja sér miða sem ruku út á nokkrum mínútum. Tónleikarnir voru einnig teknir upp og verða sýndir á RÚV 26. desember.
Fram kemur í tilkynningu frá viðskipta-og menningarmálaráðuneytinu að einstök stemming hafi myndast á tónleikunum þar sem gestir risu úr sæti og fögnuðu Magnúsi og íslensku tónlistarlífi. Magnús þakkaði sjálfur fyrir allt það góða tónlistarfólk sem hefur fylgt honum á ferlinum, eins og hann orðaði það sjálfur: „Og komið mér í stúdíó“ og vísaði þar til þeirra fjölmörgu vina sinna sem heiðruðu hann í gærkvöldi með flutning á lögum hans. Meðal þeirra var KK en þeir félagar hafa spilað saman í 28 ár en auk hans komu fram Ragga Gísla, Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjánsdóttir og dætur hennar Elísabet, Sigríður og Elín Eyþórsdætur, Mugison, Bríet, Valdimar, Salka Sól og Jón Jónsson. Einvala lið hljóðfæraleikara undir styrkri stjórn Eyþórs Gunnarssonar fór á kostum en þar á meðal voru synir Magnúsar þeir Stefán Magnússon gítarleikari og Stefán Stefánsson trommari. Magnús Eiríksson ásamt sonum sínum.Mummi Lú Mugison, Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, systkinin Ellen og KK og Magnús Óskar Hafsteinsson eiginmaður Lilju.Mummi Lú Hluti íslenskrar þjóðarsálar Saga tónlistarmannsins Magnúsar Eiríkssonar spannar marga áratugi og ótrúlegan fjölda hugverka og hljóðrita. Einlægni er Magnúsi Eiríkssyni eðlislæg auk þess hve lagræn og sönghæf lögin hafa verið frá fyrstu tíð. Textarnir hitta jafnan beint í mark og falla svo vel að laglínunum að úr verða fullkomnar samfellur. Lög Magnúsar eru órjúfanlegur hluti íslenskrar þjóðarsálar og menningararfs. Ferill Magnúsar Eiríkssonar spannar allt frá árdögum blúsvakningarinnar á Íslandi og vindur fram í gegnum sögu hljómsveitanna Blús kompanís, Pónik, Skuggasveina, Lísu í Undralandi, Brunaliðsins og svo Mannakorna, auk fjölmargra annarra verkefna. „Maggi Eiríks, eins og þjóðin þekkir hann, er ekki bara iðinn og fær tónlistarmaður heldur hefur fjölbreytni hans gefið íslensku þjóðinni marga dýrgripi og fyllt fjöldann allan af listafólki innblæstri. Laga- og textasmiðnum, gítarleikaranum og söngvaranum Magga Eiríks eru færðar þakkir frá okkur öllum og um leið vil ég þakka öllu því stórbrotna tónlistarfólki sem flutti lög Magnúsar. Ég fyllist enn á ný lotningu yfir þeim fjársjóði sem listafólkið okkar er. Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra. Salurinn hyllti Magga á fallegri stundu.Mummi Lú Árlegur viðburður Tónlistarráð var skipað í haust samkvæmt nýjum tónlistarlögum og var ráðinu meðal annars falið að móta nýja hugmynd að sérstökum heiðursverðlaunum til þess að fagna sköpunarkrafti og ævistarfi íslensks tónlistarmanns eða tónlistarhóps og þakka með þeim hætti fyrir framlag viðkomandi til íslensks tónlistarlífs. „Það þarf ekki að koma neinum á óvart að nafn Magnúsar Eiríkssonar hafi þegar á fyrstu metrum undirbúnings ítrekað borið á góma. Þegar horft var til bæði lagasmíða, textasmíða, lifandi flutnings og upptökustjórnar hljóðritunarferlisins, reyndist Tónlistarráðið einróma í þeirri niðurstöðu að Magnús Eiríksson skyldi fyrstur hljóta hin nýju heiðursverðlaun,“ segir Jakob Frímann Magnússon formaður Tónlistarráðs. Tónlistarráð sammæltist um að hin nýju verðlaun skyldu nefnd Þakkarorða íslenskrar tónlistar og verða afhent árlega á Degi íslenskrar tónlistar sem jafnan ber upp á fullveldisdaginn 1. desember. Þakkarorða íslenskrar tónlistar er samstarfsverkefni Tónlistarráðs, menningar- og viðskiptaráðuneytisins, Tónlistarmiðstöðvar, Hörpu og RÚV. Landslið tónlistarmanna kom fram á tónleikunum til heiðurs Magga.Mummi Lú Alvöru kanónur komu fram á tónleikunum, Systur, KK og Ellen, Mugison, Salka Sól, Pálmi Gunnars, Ragga Gísla og Bríet.Mummi Lú Það fór vel á með Röggu Gísla og Magga Eiríks.Mummi Lú Halla Tómasdóttir forseti Íslands ásamt Anetu Ösp Smáradóttur.Mummi Lú Guðmundur Pétursson gítarleikari og Kiddi BaggalútsHjálmur.Mummi Lú
Dagur íslenskrar tónlistar Tónlist Samkvæmislífið Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Fleiri fréttir Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Sjá meira