Lífið samstarf

Rit­dómur Lestrarklefans: Eins konar dans

Lestrarklefinn og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir
Moldin heit eftir Birgittu Björg Guðmarsdóttur er til umfjöllunar í Lestrarklefanum.
Moldin heit eftir Birgittu Björg Guðmarsdóttur er til umfjöllunar í Lestrarklefanum.

Moldin heit er önnur skáldsaga Birgittu Bjargar Guðmarsdóttur en fyrir hana hlaut hún Nýræktarstyrk árið 2024. Áður hefur hún gefið út skáldsöguna Skotheld. Díana Sjöfn Jóhannsdóttir fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn og segir þetta um bókina.

Moldin heit fjallar um hina ungu Karen sem situr í upphafi sögunnar á aftasta bekk í jarðarför ástmanns síns. Karen er dansari í ónefndum dansflokki og er líf hennar litað af sköpun og líkamlegum sársauka.

Díana Sjöfn Jóhannsdóttir skrifar reglulega um bækur á menningarvefinn Lestrarklefinn.is

Stúdía á líkömum

Um tíma minnti söguþráðurinn mig á kvikmyndina Black Swan (2010) þar sem dansarinn Karen leggur allt í sölurnar fyrir mikilvægan sólódans, en lesandi fær að kafa djúpt í tilfinningalíf aðalpersónunnar sem er lýst á ljóðrænan máta. 

Líkaminn er stórt og fyrirferðarmikið þema í verkinu, þarna koma fyrir ósjálfráða líkamar, líkamar á hreyfingu, líkamar sem frjósa og því er lýst hvernig tónlist skekur líkamann og má því segja að aðalpersónan nánast líkamnist fyrir lesandanum. 

Margir partar í sögunni eru auk þess góð núvitundaráminning þar sem lesandi er minntur á líkamsvitund og öndun. Það mætti því segja að bókin sé hálfgerð stúdía á líkömum.

Skapandi persónur

Verkið er einnig tilraun til að fanga kjarna sköpunar og ýmissa listforma, en allar persónur sögunnar eiga það sameiginlegt að þrífast í listinni á einhvern hátt. Karen er auðvitað dansari og líkami hennar því verkfæri og list í sjálfu sér, ástmaðurinn heitni var ljósmyndari, Ýmir vinur hennar er píanóleikari og vinkona hennar Esja er síðan söngkona. Auk þess er togstreitan, eða hugmyndafræðilegi munurinn, sem Birgitta lýsir á milli hreyfingar dansins annars vegar og svo tilhneigingu ljósmyndunnar til að frysta hreyfingu hins vegar sett upp á mjög áhugaverðan hátt. ,,Líkaminn á pappírnum var ekki verkfærið sem ég þekkti’,’ (bls. 101) segir Karen meðal annars þegar hún uppgötvar það sem henni þykir óþægilegur munur á milli sín og þess sem hún elskar.

Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.