Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Rafha 1. október 2024 10:07 Margrét Þórhallsdóttir, hönnuður hjá KVIK í Reykjavík, segir að eldhúsin frá KVIK sameini vanmetin glæsileika og virðingu við náttúruna. „Eins og alltaf eru efnin sem notuð eru í framleiðsluna valin með sjálfbærni og umhverfisvernd í huga." Danski eldhúsframleiðandinn KVIK var rétt í þessu að kynna EVENTO, nýja eldhúslínu sem sækir innblástur í náttúruna með fallegum mjúkum línum og hlýlegum undirtón.
Hönnunin er liður í þeirri stefnu Kvik að eldhúsið eigi að vera aðlaðandi og þægilegt rými þar sem fjölskyldan getur notið samverustunda í hjarta heimilisins. EVENTO fæst í tveimur fallegum litum Arizona Beige og hvítum möttum lit. Mjúkir litir og flæðandi form einkenna EVENTO. Hornin eru ekki hefðbundin og hornrétt heldur rúnnuð til að skapa mýkt og minna helst á hönnunarstefnur fyrri tíma í nútímalegum búningi. Margrét Þórhallsdóttir, hönnuður hjá KVIK í Reykjavík, segir að mismunandi eiginleikar EVENTO eldhússins gefi viðskiptavinum tækifæri á að setja eldhúsið í persónulegan búning. „Þannig er til dæmis auðvelt að velja um mismunandi liti í innfeldum gripum og gera þannig ásýndina persónulegri og einstaka fyrir hvern og einn.“ Margrét segir að eldhúsin frá KVIK sameini vanmetin glæsileika og virðingu við náttúruna. „Eins og alltaf eru efnin sem notuð eru í framleiðsluna valin með sjálfbærni og umhverfisvernd í huga. Framhliðarnar eru úr endurunnu MDF efni og yfirborðsfilman er gerð úr endurunnum PET plastflöskum. Þessi samskeytalausa húðun á framhliðunum gerir eldhúsið endingarbetra og slitsterkara.“ Önnur nýjung leit líka dagsins ljós í september, en það er hin geysivinsæla eldhúslína VEDA sem fæst núna í nýrri útgáfu með hringlaga inngreyptum handföngum og rúnnuðum hornum. „Fjölmargar útfærslur og litir af VEDA bjóða upp á endalausa möguleika og þannig hægt að aðlaga að þörfum og smekk hvers og eins.“ Í tilefni af spennandi haustnýjungum efnir KVIK í Reykjavík til sannkallaðrar hönnunarveislu og býður viðskiptavinum 40% afslátt af borðplötum úr vörulínu Kvik með öllum seldum innréttingum í október. Viðskiptavinir geta bókað ókeypis teiknitíma hjá hönnuði (neðst á síðunni) þar sem við komum hugmyndum á framfæri og setjum upp tilboð á sama tíma. Nánari upplýsingar á rafha.is.
Hús og heimili Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira