Sykursalur orðinn einn vinsælasti veislusalur Reykjavíkur Sykursalur 7. október 2024 08:53 Sigrún Ebba Urbancic, framkvæmdastjóri og annar af eigendum Sykursalar. Sykursalur er einstaklega glæsilegur veislusalur sem opnaði undir lok árs 2022 í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýri. Á skömmum tíma hefur Sykursalur stimplað sig inn sem einn eftirsóttasti veislu- og viðburðasalur landsins.
Salurinn rúmar 200 manns og hentar vel fyrir flestar tegundir af viðburðum og veislum. „Hér hafa verið árshátíðir, afmæli, brúðkaup, fermingar, jólahlaðborð og allar þessar helstu veislur,“ segir Sigrún Ebba Urbancic, framkvæmdastjóri og annar af eigendum Sykursalar. „Á virkum dögum erum við svo mikið að fá til okkar ráðstefnur, vinnustofur, vörukynningar og þess háttar.“ Salurinn rúmar 200 gesti og er frábærlega staðsettur í Vatnsmýri, steinsnar frá miðbænum. Glæsileg hönnun og frábær staðsetning Sykursalur er frábærlega staðsettur í húsinu Grósku í Vatnsmýri, sem er ein af glæsilegri byggingum landsins, steinsnar frá miðbæ Reykjavíkur. Salurinn sjálfur var fallega hannaður af HAF Studio. Úr afmælisveislu í Sykursalnum. „Það var engu til sparað við hönnun salarins. Við lögðum líka mikla áherslu á fallega lýsingu,“ segir Sigrún, en samspil ljósanna og sjónsteypunnar í salnum er einstakt. „Fólk getur valið á milli mismunandi lita á veggljósunum í veislum og skapað þannig þá stemningu sem það vill.“ Sigrún segir að við val á húsgögnum hafi verið haft í huga að geta raðað salnum upp á ólíka vegu og fyrir mismunandi fjölda fólks. „Borðin í salnum eru úr svartri eik og eru í hentugri stærð svo hægt er að stilla þeim upp á mismunandi hátt eftir því hvað hentar hverjum og einum viðburði. Stólarnir eru svo bæði fallegir og þægilegir,“ segir hún. Sykursalur er vinsæll fyrir kynningar, ráðstefnur og vinnufundi. Fullkominn tækjabúnaður sparar kostnað Í Sykursal er fyrsta flokks hljóðkerfi og ljósabúnaður frá Exton, ásamt sýningartjaldi, sviði og hljóðnemum. Fólk þarf því ekki að leigja slíkan búnað aukalega. „Viðskiptavinir okkar hafa verið sérstaklega ánægðir með hvað salurinn er vel tækjum búinn. Notkun á þeim er öll innifalin í leiguverðinu,“ Margt af vinsælasta tónlistarfólki og skemmtikröftum landsins hefur troðið upp í salnum á þeim fjölmörgu viðburðum sem þar hafa verið haldnir undanfarin tvö ár. „Hér hafa verið frábærar veislur. Það myndast alveg einstök stemning,“ segir Sigrún. Frá vel heppnaðri árshátíð í Sykursalnum. Þrif og borðbúnaður innifalin í leiguverði Úr brúðkaupsveislu í Sykursalnum. Sigrún segir að í Sykursalnum sé mikið lagt upp úr því að auðvelda fólki lífið og minnka álagið sem getur fylgt því að halda veislu eða viðburð. „Það á að vera ánægjulegt að halda veislu og gleðjast með fólkinu sínu. Við leggjum okkur fram við að veita frábæra þjónustu,“ segir hún. Í salnum er fullbúinn bar. Hægt er að leigja salinn bæði með og án veitinga og borðbúnaður fylgir með. Þrif eru sömuleiðis innifalin í leiguverðinu. „Fólki þykir þægilegt að þurfa ekki að hugsa um þrif að veislu lokinni. Það getur bara klárað veisluna og haldið áhyggjulaust heim að henni lokinni.“ Góð hljóðvist breytir miklu Emmsjé Gauti treður upp á viðburði í Sykursalnum Sigrún segir einn af helstu kostum Sykursalar vera einstaklega góða hljóðvist. Fólki líði vel í salnum og þar sé þægilegt að hlusta á atriði sem eru í gangi eða tala saman. Salurinn er vel hljóðeinangraður og hentar afar vel fyrir bæði tónleika og uppistand. Uppistandið Púðursykur var einmitt sýnt í salnum síðasta vetur og nú í september var ný sýning, Meiri Púðursykur, frumsýnd í salnum. Í Púðursykri koma fram nokkrir af vinsælustu grínistum landsins og hafa sýningarnar notið fádæma vinsælda. Nánari upplýsingar um Sykursalinn má finna á sykursalur.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið sigrun@sykursalur.is. Uppistandið Púðursykur hefur slegið rækilega í gegn í Sykursalnum en síðastliðinn vetur mættu 10 þúsund gestir að sjá það. Stílhrein hönnun og góð hljóðvist. Samspil veggljósanna og sjónsteypunnar skapar einstakt útlit. Fallegar skreytingar njóta sín vel í salnum.
Fermingar Brúðkaup Mest lesið Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Lífið Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Lífið Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Lífið Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið 50+: Það má segja Nei við barnapössun Lífið Bryndís Líf og Stefán eiga von á dreng Lífið Retinól-salat tekur yfir TikTok Matur Theodór Elmar og Pattra í sundur Lífið Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Bíó og sjónvarp Gummi Ben gerir aldargamla fjölskylduuppskrift Lífið Fleiri fréttir Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Kostnaður listarinnar Spennandi unglingabók um samfélag í upplausn, samkennd og heitar tilfinningar Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Kenzen með 5 af topp 20 vörunum á Óskar appinu Fjörðurinn, húsið og leyndarmálin Græjaðu gjafalistann á góðum prís Snjallt pöntunarkerfi á hádegismat sparar vinnu, tíma og kostnað Ný vefverslun Slippfélagsins er paradís fyrir myndlistafólk Höfundar lesa í beinni í kvöld BRASA er nýr og glæsilegur veitingastaður í hjarta Kópavogs Birgitta Haukdal áritaði bækur í Smáralind Mannlega hlið fjármálanna kjörnuð í bókinni Sálfræði peninganna Eru geimverur meðal okkar? Tilbrigði við sannleika Myndaveisla: Klikkuð stemning í Eldhúspartýi FM957 Partyland fagnar tveggja ára afmæli með 20% afslætti alla vikuna Fyrsti íslenskumælandi bóndabærinn slær í gegn Einar Már, Sunna Dís og Sigrún Eldjárn lesa upp í kvöld Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa Fegurðin og fjölbreytnin í krulluðu hári Nanna Rögnvaldar og Hallgrímur Helga lesa í kvöld Sól, borg, skíði og flug á einum stað Alvöru kósýkvöld með frábærum afsláttum, gleði og góðri stemningu Góð tannheilsa er hluti af hamingju og heilsu Kvefið gengur hraðar yfir með ColdZyme® Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Sjá meira