Óvænt að heyra að fólkið á LungA hafi alist upp við Hjaltalín Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 22. júlí 2024 13:21 Hljómsveitin kom fram á LungA um helgina eftir nokkurra ára hlé. Hjaltalín Hljómsveitin Hjaltalín kom fram sem síðasta atriði síðustu LungA-tónlistarhátíðarinnar sem fór fram núliðna helgi eftir langt hlé hljómsveitarinnar. Sigríður Thorlacius, söngkona Hjaltalín, segir tækifærið hafa komið á hárréttum tíma og útilokar ekki að hljómsveitin komi fram að nýju.
LungA-hátíðin var haldin í síðasta skipti um helgina eftir að hafa verið árlegur liður í menningarlífi Seyðisfjarðar í aldarfjórðung. Þátttakendur sem fréttamaður á svæðinu ræddi við um helgina voru flestir leiðir yfir því að hátíðin yrði ekki haldin aftur. Endurkoma verið yfirvofandi Nokkrir gestir sem fréttamaður ræddi við sögðu hápunkt hátíðarinnar þegar Hjaltalín steig á svið, síðasta hljómsveitin á dagskrá síðustu LungA-tónleikanna. Fimm ár eru síðan hljómsveitin kom síðast fram, en hvað kom til að hún stökk á þetta tækifæri á þessum tímapunkti? „Þau höfðu samband við okkur og biðluðu til okkar hvort við værum til í þetta,“ segir Sigríður Thorlacius í samtali við fréttastofu. Þau hafi verið fljót að samþykkja boðið. „Það var í fyrra, fyrir jól, að við vorum farin að tala saman um hvort okkur langaði að gera eitthvað smávægilegt. Spila tónleika, eins og í gamla daga, með efni sem við eigum í dag,“ bætir hún við. Þegar bónin kom frá skipuleggjendum LungA hafi þeim þótt kjörið að stökkva á tækifærið. Þau hafi byrjað á að hittast og æfa nokkur lög og sjá hvernig þeim líkaði. „Þetta var ótrúlega gaman og við vorum öll svo glöð og fannst skemmtilegt að hittast aftur eftir svona langan tíma.“ Átti ekki von á slíkum undirtektum unga fólksins Sigríður segir tilfinninguna að koma fram á ný ótrúlega góða. „Það var kannski pínu fiðrildi, langt síðan við höfum gert þetta.“ Hún segist hissa hvað hljómsveitin hafi fengið fallegar móttökur. Það hafi komið þeim á óvart hve margir hefðu kunnað lögin og sungið með. „Þetta var pínulítið óvænt af því að við erum auðvitað töluvert eldri en unga fólkið á LungA. Ég átti ekkert endilega von á að þau hefðu verið að hlusta á þessa tónlist,“ segir Sigríður. „Ég hitti einhverjar fallegar ungar manneskjur sem voru að segja, þetta er músíkin sem ég var alin upp við! Þá erum við komin svolítið á annað level. Þá erum við komin með aðra kynslóð af hlustendum og mér þótti ótrúlega vænt um það að eldast og ná nýjum hlustendum líka og finna að við fáum að fylgja einhverju fólki frá því að þau voru lítil. Það er svolítið mögnuð tilfinning,“ bætir hún við, það hafi hljómsveitin ekki upplifað áður. Sigríður segist ekki útiloka að Hjaltalín geri eitthvað meira í framhaldinu, eftir að framkoman á LungA heppnaðist svo vel. Áhugasömum sé bent á að fylgjast með miðlum sveitarinnar. „Það var óvæntur og skemmtilegur heiður að fá að vera síðasta bandið á síðasta LungAnu. Þegar svona gott tækifæri býðst og allir eru stilltir á sömu bylgjulengd er ekkert skemmtilegra,“ segir Sigríður að lokum.
Tónlist LungA Múlaþing Tengdar fréttir Komið að endalokum eftir 25 ár Listahátíðin Lunga fer nú fram á Seyðisfirði í síðasta sinn eftir tuttugu og fimm ára farsæla sögu. Skipuleggjendur segja tímamótin einkennast af trega og gleði í bland. Lokakvöld hátíðarinnar fer nú í hönd, þar sem haldnir eru stórtónleikar í tilefni endalokanna. Líf og fjör var á Seyðisfirði síðdegis og hátíðargestir greinilega spenntir fyrir kvöldinu. 20. júlí 2024 21:58 Mest lesið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið „Það spurði þig enginn“ Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Maður þurfti ekki að vera skyggn Gagnrýni Fleiri fréttir Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Frumsýning á Vísi: „Þetta er alveg ný hlið á mér“ Sjá meira
Komið að endalokum eftir 25 ár Listahátíðin Lunga fer nú fram á Seyðisfirði í síðasta sinn eftir tuttugu og fimm ára farsæla sögu. Skipuleggjendur segja tímamótin einkennast af trega og gleði í bland. Lokakvöld hátíðarinnar fer nú í hönd, þar sem haldnir eru stórtónleikar í tilefni endalokanna. Líf og fjör var á Seyðisfirði síðdegis og hátíðargestir greinilega spenntir fyrir kvöldinu. 20. júlí 2024 21:58