Strákarnir unnu Tyrki og héldu sér í A-deild Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. júlí 2024 15:28 Ísland vann Tyrkland í úrslitaleik um það hvort liðið héldi sér í A-deild Evrópumótsins. kkí Ísland tryggði sér áframhaldandi sæti í A-deild Evrópumóts karla í körfubolta U-20 ára með sigri á Tyrklandi í dag, 96-95.
Íslendingar unnu síðustu tvo leiki sína á EM og héldu sér þar með í A-deild mótsins. Tómas Valur Þrastarson skoraði 26 stig fyrir íslenska liðið í dag, tók fimm fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Hann hitti úr ellefu af sextán skotum sínum. Ágúst Goði Kjartansson skoraði 22 stig og gaf sjö stoðsendingar og Almar Orri Atlason var með 21 stig og þrettán fráköst. Daníel Halldórsson gerði svo ellefu stig og gaf fimm stoðsendingar. Íslensku strákarnir leiddu bróðurpart leiksins og náðu mest tólf stiga forskoti. Tyrkir voru þó aldrei langt undan og þeir voru yfir í hálfleik, 36-38. Líkt og gegn Norður-Makedóníumönnum í gær fóru Íslendingar mikinn í 3. leikhluta sem þeir unnu með tíu stigum, 32-22. Tyrkneska liðið sótti hart að því íslenska á lokakafla leiksins en fór aðeins of seint í gang. Almar fór langt með að tryggja Íslandi sigurinn þegar hann skoraði körfu góða, setti niður vítaskot og kom Íslendingum í 96-92 þegar fimm sekúndur voru eftir. Tyrkir svöruðu með þriggja stiga körfu en tíminn var of naumur fyrir þá og Íslendingar fögnuðu sigrinum vel og innilega. Íslensku strákarnir töpuðu frákastabaráttunni, 62-38, og fengu á sig 26 stig eftir sóknarfráköst. Þeir skoruðu hins vegar tíu fleiri stig en Tyrkir úr hraðaupphlaupum og hittu betur, 57 prósent gegn 48 prósentum. Sumarið var einstaklega gott fyrir strákana í íslenska liðinu því þeir urðu Norðurlandameistarar auk þess að halda sér í A-deild.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Sjá meira