Heimildarmynd um Tryggva Hlinason sýnd á Stöð 2 Sport 2 í kvöld Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. maí 2024 13:30 Tryggvi Hlinason er viðfangsefni heimildamyndar sem Rafa Martinez átti hugmyndina að. Heimildarmynd um íslenska landsliðsmiðherjann Tryggva Hlinason verður sýnd á Stöð 2 Sport 2 klukkan 20.45 í kvöld.
Spænska körfuboltadeildin ACB framleiddi þessa nýju heimildarmynd um Tryggva sem á aðeins örfáum árum fór frá því að keppa í körfubolta í fyrsta sinn í það spila í Meistaradeildinni í körfubolta. Þessi 216 sentimetra og 26 ára gamli körfuboltamaður hefur haldið velli í bestu körfuboltadeild Evrópu og er á góðri leið með að vera sá Íslendingur sem hefur spilað þar lengst samfellt. Það eru ekki aðeins körfuboltahæfileikar Tryggva sem hafa vakið athygli heldur einnig uppruni hans og æska í Svartárkoti í Bárðardal. Klippa: Kindur Trailer #1 Heimildarmyndin heitir Kindur (Ovejas) og fjallar um heimsókn spænska körfuboltamannsins Rafa Martínez til Tryggva og fjölskyldu hans í Svartárkoti. Martínez er nýbúinn að leggja skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril. Þegar Tryggvi sagði honum að hann væri fjárbóndi á sumrin þá lofaði Martínez honum að koma í heimsókn þegar skórnir væru komnir upp á hillu. Martínez stóð við stóru orðin síðasta sumar og með honum komu myndatökumenn til að festa allt á filmu. Klippa: Kindur Trailer #2 Tryggvi segir meðal annars í myndinni að meðan að liðsfélagarnir hans á Spáni séu í afslöppun í sumarfríinu sínu þá sé hann mættur norður í Svartárkot til að vinna langan vinnudag. Einnig segir hann frá því hvernig fjölskyldan tók því þegar hann sagði frá því að hann væri að yfirgefa bóndabæinn til að spila körfubolta á Spáni. Tvær stiklur fyrir myndina má sjá í spilurunum hér að ofan. Myndin verður svo sýnd í kvöld klukkan 20.45 á Stöð 2 Sport 2. Hér er hægt að næla sér í áskrift.
Spænski körfuboltinn Landslið karla í körfubolta Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Valur - Njarðvík | Meistararnir á Hlíðarenda Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira