Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Indíana Rós Ægisdóttir skrifar 30. apríl 2024 20:01 Indíana Rós er kynfræðingur og með M.Ed gráðu í Kynfræði frá Widener University auk þess að vera með BSc í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Vísir Á undanförnum árum hefur áhugi og umræða um swing, sem er oft kallað „lífstíllinn’’, hópkynlíf og fjölkær sambönd aukist nokkuð. Þetta eru þó öll fyrirbæri sem hafa lengi verið til sögulega séð og alls ekkert ný af nálinni. Enn fremur benda rannsóknir til þess að til dæmis sé hópkynlíf ein algengasta kynferðislega fantasía fólks og því eðlilegt að forvitni sé til staðar. Að prófa sig áfram í einhverju af þessum fjölbreyttu formum sambanda og samskipta getur verið spennandi en á sama tíma getur það verið smá ógnvekjandi og vakið upp óöryggi til að byrja með. En smá fræðslu og góðum undirbúningi er hægt að efla sjálfstraustið í að þora taka af skarið! Kynlífið með Indíönu Rós kynfræðingi er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Indíana Rós lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Indíönu Rós spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni. Hópkynlíf er ein algengasta kynferðislega fantasían.Vísir/Getty Byrjum bara á einföldum útskýringum á nokkrum hugtökum: Hvað er lífstíllinn eða swing? Swing eða lífstílinn vísar til para sem ákveða saman að stunda kynlíf með öðrum pörum eða einstaklingum. Það eru ýmsar ástæður fyrir því fólk vill prófa - sum pör til að fá ákveðna breytingu í kynlífinu sínu eða einfaldlega vegna þess að þau eru forvitin og vilja skemmta sér. Hvað er hópkynlíf? Hópkynlíf felur í sér kynlíf með fleiri en tveimur einstaklingum. Þetta getur verið þriggja eða fjögurra manna leikur eða jafnvel með stærri hóp. Hópkynlíf getur verið skipulagt eða óformlegt og fer oft fram í öruggu og samþykktu umhverfi eins og kynlífsklúbbum eða í einkapartýum. Hvað eru fjölkær sambönd? Fjölkær sambönd eru sambönd þar sem fólk er í upplýstum, samþykktum og meðvituðum samböndum með fleiri en einum aðila. Hér má lesa meira um fjölkær sambönd. Það er ekkert endilega svart/hvítur munur á þessum fjölbreyttu formum og ekki er sjálfgefið að allt sé svona klippt og skorið. Til dæmis myndi swing alveg geta talist sem hópkynlíf, og pör í fjölkærum samböndum geta alveg tekið þátt í „lífstílnum”. Í öllu þessu er klárt mál að hér er alls ekki verið að lýsa framhjáhaldi eða afsökunum fyrir því, heldur er ávallt skýrt samþykki og samtal á milli viðeigandi aðila þar sem öllum líður varðandi hvað á sér stað. Áður en þið byrjið: 1. Ræðið saman: Opin og heiðarleg samskipti eru grundvallaratriði. Pör sem íhuga opna samband sitt á einn eða annan hátt, ættu fyrst að ræða væntingar, mörk, langanir og öryggismál. Það er mikilvægt að öll séu á sama máli og allir þættir séu mjög skýrir fyrir alla hlutaðeigandi aðila. 2. Setjið reglur: Ákveðið hvað er leyfilegt og hvað ekki. Þetta getur verið allt frá því hvað má og má ekki í kynlífi og samskiptum með öðrum, hvernig getnaðar- og kynsjúkdómavörnum er háttað, hvernig ætti að bregðast við ef einhver finnur fyrir öfundsýki eða óþægilegum tilfinningum í miðjum leik. Gott er að nefna að oft setur fólk strangari reglur til að byrja með og svo losnar oft um þessar reglur með tímanum þegar fólk hefur öðlast aukna reynslu. 3. Veljið rétta vettvanginn: Leitið að viðburðum eða stöðum sem bjóða upp á öruggt og þægilegt umhverfi. Þetta gæti verið kynlífsklúbbur erlendis eða einkapartý með gestgjöfum sem þið treystið. Þá getur verið að þið viljið fyrst byrja á að hitta par eða einstakling á kaffihúsi eða í matarboði þar sem engar væntingar til kynlífs eða annara athafna eru, til að sjá hvernig þið náið saman. 4. Blessuðu tilfinningarnar Það er eðlilegt að upplifa alls konar tilfinningar og það „má” upplifa spennu og stress fyrir sama atburðinum á sama tíma. Talið um upplifanir ykkar og tilfinningar á hreinskilinn hátt. Það þarf að hlusta vel á sín mörk og vera skýr og heiðarleg/ur/t, þá er ekki síður mikilvægt að virða mörk annarra og setja engan þrýsting á að gera eitt eða neitt sem aðili hefur ekki sagst tilbúin/n/ð í. Hjá pari sem er að fara prófa sig áfram geta verið mismunandi langanir til staðar og fólk tilbúið að prófa mismikið. Vísir/Getty 5. Að mæta ólíkum löngunum Hjá pari sem er að fara prófa sig áfram, geta skiljanlega verið mismunandi langanir og fólk tilbúið að prófa mismikið. Þá þarf sá sem tilbúin/n/ð að gera meira alltaf að minnka sínar væntingar til að mæta þeim sem er tilbúin/n/ð í minna. Til dæmis -ef aðili A og B eru til í að fara í leik með öðru pari. A er til í að stunda samfarir með öllum aðilum, en B er ekki tilbúin/n/ð í samfarir með öðrum, þá þarf A að minnka sínar væntingar og aðlaga sig að því sem B vill og því munu samfarir ekki eiga sér stað í það skiptið. Allt þetta og fullt fleira ræddum ég og Sigga Dögg kynfræðingur í þættinum hér að neðan. Þar ræddum við hvar má finna fólk í svipuðum hugleiðingum og varðandi ofangreind málefni og við ræddum fleiri ráð sem gott er að hafa í huga áður fólk lætur vaða! Kynlíf Kynlífið með Indíönu Rós Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Sjá meira
Kynlífið með Indíönu Rós kynfræðingi er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Indíana Rós lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Indíönu Rós spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni.
Kynlíf Kynlífið með Indíönu Rós Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Sjá meira