Þór gegn OMON
Þór halda flekklausu sigurgöngu sinni áfram í deildinni en unnu Þórsarar OMON 3-0 í viðureigninni í gær. Fyrsti leikurinn fór 2-1, sá annar 4-2 og lokaleikurinn 5-1 allt Þórsurum í vil.
354 gegn OGV
OGV nældu sér í sinn fjórða sigur í 6. umferðinni gegn 354 en fór viðureignin 3-1 fyrir OGV. Fyrsti leikur viðureignarinnar fór 2-1 fyrir OGV, svöruðu 354 OGV með sigri í öðrum leiknum, en sá leikur fór í 23 sekúndna framlengingu. Í næstu leikjum viðureignarinnar fór snögglega undan fæti að halla hjá 354 en töpuðu þeir síðustu 2 leikjunum 4-0 og 7-1.
DUSTY gegn Quick Esports
Sigur Quick Esports gegn DUSTY í síðustu viðureign kvöldsins kemur kannski sumum verulega að óvörum þar sem að DUSTY voru búnir að sigra allar viðureignir sínar að viðureign sinni gegn Þór fráskilinni en þegar kafað er dýpra má sjá að ekki var allt með felldu. Fengu Quick Esports dæmt 3-0 í viðureigninni en í öðrum leiknum datt Paxole, 1 af leikmönnum DUSTY, úr leiknum sökum tæknilegra örðugleika. Að lokum kröfðust Quick Esports sigurs í þriðja leiknum eftir 5 mínútna bið svo fátt sé nefnt.
Nánari upplýsingar varðandi þetta atvik má nálgast á upptöku útsendingarinnar.
Upplýsingar um núverandi stöðu deildarinnar má nálgast hér á myndinni fyrir neðan:

7. umferð hefst á þriðjudaginn í næstu viku þann 23. apríl kl. 19:40 en allar viðureignir deildarinnar eru sýndar í beinni útsendingu á streymisrás RLÍS.